Lokanir á „myrkranetsmörkuðum“ marka þáttaskil Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. júlí 2017 00:15 Myrkranetsíðunum AlphaBay og Hansa hefur verið lokað. Vísir/Getty
Tveimur stærstu myrkranetsmarkaðstorgum í heimi, þar sem ólöglegur varningur gekk kaupum og sölum, hefur verið lokað vegna alþjóðlegrar rannsóknar á starfsemi þeirra. BBC gerði ítarlega úttekt á málinu. Varningur á borð við eiturlyf, vopn, spilliforrit (e. malware) og stolin gögn var til sölu á myrkranetssíðunum AlphaBay og Hansa, sem lokað var í kjölfar samhæfðra aðgerða lögregluyfirvalda í Evrópu og Bandaríkjunum. Myrkranetið svokallaða, eða „dark web,“ samanstendur af vefsíðum og öðru efni á Internetinu sem aðeins er hægt að nálgast með sérstökum hugbúnaði, heimildum eða stillingum. Áðurnefndar vefsíður, AlphaBay og Hansa, tilheyrðu þessum flokki en vegna þess hversu erfitt er að nálgast efni á myrkranetinu hafa einhverjir hlutar þess orðið vettvangur glæpastarfsemi.Um að ræða tvær lokanirAlphaBay var lokað í byrjun þessa mánaðar en í kjölfarið jókst notendafjöldi Hansa, hinnar síðunnar sem lokað var. Sú síða hafði þó verið undir leynilegu eftirliti hollensku lögreglunnar síðan í lok júní síðastliðnum en henni var lokað nú fyrir skömmu, þegar eftirlitið hafði staðið yfir í um mánuð. Samhæfðar aðgerðir Bandarísku alríkislögreglunnar (FBI), Bandarísku fíkniefnalögreglunnar (DEA) og hollensku lögreglunnar leiddu til lokananna, auk þess sem tveir menn voru handteknir í Þýskalandi í tengslum við rekstur Hansa. Þá var lagt hald á netþjóna í Þýskalandi, Hollandi og Litháen. Þessar aðgerðir eru taldar hafa markað þáttaskil í rannsóknum á glæpastarfsemi á myrkranetinu.Viðskiptin sögð hafa leitt til dauðsfallaÞá rekja yfirvöld í Bandaríkjunum nokkur dauðsföll bandarískra ríkisborgara til viðskipta á téðum myrkranetsmarkaðstorgunum. „Við vitum til þess að fjölmargir Bandaríkjamenn hafa látið lífið vegna eiturlyfja sem þeir keyptu á AlphaBay,“ sagði dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Jeff Sessions. Hann nefndi sérstaklega 18 ára stúlku og 13 ára dreng sem létust bæði eftir að þau innbyrtu of stóra skammta af eiturlyfjum sem keypt voru á AlphaBay. Þá er vitað til þess að heróín og fentanýl, eiturlyf sem dregið hafa fjölda fólks til dauða, hafi verið til sölu á síðunni. „Þið getið ekki falið ykkur. Við munum finna ykkur,“ sagði Sessions og beindi ummælum sínum til glæpamanna sem stunda ólögleg viðskipti á myrkranetinu.Meintur stjórnandi fannst látinn í fangelsi í TaílandiEinn af meintum stjórnendum AlphaBay, Kanadamaðurinn Alexandre Cazes, var handtekinn í Taílandi 5. júlí síðastliðinn en aðgerðir vegna síðanna hafa verið afar umfangsmiklar. Við handtökuna lagði lögregla hald á margar milljónir Bandaríkjadala, bundnar í ýmsum eignum, þrjár fasteignir og fjórar bifreiðar af tegundinni Lamborghini. Cazes fannst látinn í klefa sínum í fangelsi í Bangkok, höfuðborg Taílands, nokkru síðar. Talið er að hann hafi framið sjálfsmorð. Árið 2013 var sambærilegu myrkranetsmarkaðstorgi, Silk Road, lokað. Aðrar og stærri síður leystu Silk Road fljótlega af hólmi, þar á meðal AlphaBay, en ljóst þykir að stjórnvöld þurfi nú að einblína á stór og margbrotin net glæpasamtaka, sem standa að stofnun markaðstorganna.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira