Kann að hafa banað á annað hundrað sjúklinga sinna Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2017 13:00 Verði hann sakfelldur er Niels Högel mesti raðmorðingi í sögu Þýskalands. Vísir/AFP
Saksóknarar í Þýskalandi segja að þýski hjúkrunarfræðingurinn Niels Högel kunni að hafa banað á annað hundrað sjúklinga sinna. Dómstóll í Þýskalandi hefur þegar dæmt Högel fyrir morð á tveimur sjúklingum, en saksóknarar telja nú að hann hafi alls banað 102, mun fleiri en áður var talið. Í frétt Reuters kemur fram að ef hann yrði sakfelldur í málinu yrði hann mesti raðmorðinginn í sögu Þýskalands. Högel er fjörutíu ára og starfaði á tveimur sjúkrahúsum, annars vegar í Oldenburg í og hins vegar í Delmenhorst í Neðra-Saxlandi. Rannsókn lögreglu hefur nú leitt í ljós að gögn bendi til að Högel hafi drepið 38 manns í Oldenburg og 62 í Delmenhorst, auk morðanna á þeim tveim sem hann hefur þegar hlotið dóm fyrir. Högel var sakfelldur fyrir að hafa gefið sjúklingum of stóran skammt af lyfjum sem leiddi til hjartastopps. Í sumum tilvikum reyndi hann að endurlífga sjúklingana í þeim tilgangi að verða álitinn hetja í huga annars starfsfólks á sjúkrahúsunum. Í réttarhöldum árið 2015 viðurkenndi Högel að hafa orðið mun fleiri sjúklingum að bana en þá var hægt að sanna. Hafa alls 134 lík verið grafin upp til að sannreyna hvað olli dauða viðkomandi. Saksóknarar greindu frá því í ágúst síðastliðinn að talið var að Högel hafi banað 84 manns, en nú hefur sú tala við hækkuð. Ekki er útilokað talan kunni að hækka enn frekar þar sem niðurstaðna er enn beðið vegna sjúklinga Högel sem jarðsettir voru í Tyrklandi.
Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Innlent Fleiri fréttir Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sjá meira