Viðskipti innlent

Kaup þriggja risaskipa styrkja tengsl Íslands og Grænlands

Kristján Már Unnarsson skrifar
Eimskip og Royal Arctic Line hafa samhliða undirritað samninga um smíði stærstu flutningaskipa í sögu Íslands og Grænlands.  Ásamt samstarfssamningi leiða skipakaupin til þess að viðskiptabönd Íslendinga og Grænlendinga styrkjast verulega á næstu árum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. 

Eimskip lætur smíða tvö skip í Kína og skipafélag grænlensku landsstjórnarinnar, Royal Arctic Line, lætur smíða eitt samskonar skip, að því er fram kemur í tilkynningu frá Eimskip í dag. Félögin hafa gert samning um samstarf sem miðar meðal annars að samnýtingu skipanna.

Skipin verða þau stærstu sem Íslendingar hafa eignast, 180 metrar á lengd og 31 metri á breidd, og bera 2.150 gámaeiningar hvert.Teikning/Eimskip.
Skipin verða 180 metrar á lengd og kostar hvert þeirra um 3,7 milljarða króna. Þau verða afhent eftir tvö ár og verða þá stærstu skip í siglingasögu Íslands. Skip Grænlendinga verður einnig það stærsta sem þeir hafa eignast.

Stærstu skip Eimskips í dag, Dettifoss og Goðafoss, bera um 1.450 gámaeiningar. Nýju skipin munu hins vegar bera 2.150 gámaeiningar eða um 50 prósent meira. 

Framkvæmdir eru hafnar við stækkun Sundahafnar í Reykjavík með gerð nýs 400 metra langs hafnarbakka.Teikning/Faxaflóahafnir.
Þau verða svo stór að það er byrjað að stækka Sundahöfn. Faxaflóahafnir hafa sett af stað framkvæmdir við nýjan 400 metra viðlegukant og vinna starfsmenn Ístaks þessa dagana að því að reka niður stálþil. Einnig þarf að dýpka út frá bryggjunum.

Nýi hafnarbakkinn verður utan Klepps og á að verða tilbúinn áður en nýju skipin koma árið 2019.

Nýi hafnarbakkinn verður norðan við Klepp, Jafnframt þarf að dýpka hafnarsvæðið niður í 10-12 metra dýpi á stórum kafla.Teikning/Faxaflóahafnir.
Áður höfðu Grænlendingar hafið stækkun hafnarinnar í Nuuk en litið er á verkefnið sem einskonar efnahagslega sjálfstæðisyfirlýsingu af hálfu Grænlands. Markmiðið er að klippa á þann nýlendubrag sem felst í því að allir skipaflutningar til og frá Grænlandi þurfi að fara um Álaborg í Danmörku.



Grafísk mynd af nýju gámahöfninni í Nuuk.Grafík/Sikuki Nuuk Harbour A/S.
Í staðinn hyggjast Grænlendingar tengjast flutningakerfi Eimskips um Ísland. Þetta þýðir að gámar merktir Royal Arctic verða meira áberandi í Reykjavík jafnframt því sem skip Grænlendinga koma til með að flytja vörur fyrir Íslendinga. 

En kannski eru stærstu tíðindin pólitísks eðlis, því menn telja sig lesa úr þessu þá stefnumörkun grænlenskra stjórnvalda að í framtíðinni verði Íslendingar á viðskiptasviðinu bestu vinir Grænlendinga. 

Rætt var við Gylfa Sigfússon, forstjóra Eimskips, um þessi áform í fréttum Stöðvar 2 fyrir þremur mánuðum.


Tengdar fréttir

Grænlendingar byggja upp nýtt flugvallakerfi

Grænlensk stjórnvöld áforma stórfelldar flugvallaframkvæmdir sem gjörbreyta flugsamgöngum við landið og gætu styrkt tengsl Íslands og Grænlands enn frekar.

Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands

Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum.

Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli

Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×