Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Oddur Ævar Gunnarsson og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 7. september 2026 10:52 Daði Már Kristófersson segir nýtt gjald á ferðamenn tíðkast víða. Vísir/Anton Brink Ríkisstjórnin hyggst kynna nýja gjaldtöku á ferðamannastöðum sem felur í sér að ferðamenn verða rukkaðir um sérstakan aðgöngumiða. Fjármálaráðherra segir um að ræða fyrirkomulag sem þekkist víða annars staðar en með þessu á að afla fimm milljarða króna til ríkissjóðs.
Fram kemur í fjárlagafrumvarpinu að gjaldið eigi að leggjast á ferðamannastaði og að ferðamenn greiði fyrir aðgang að þeim ferðamannastöðum og náttúruperlum sem eru í eigu íslenska ríkisins. Tilgangurinn sé að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið, tryggja réttlát auðlindagjöld, vernda náttúru og stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúruperla. „Það hefur lengi verið umræða um það að taka upp einhverskonar aðgangsgjald. Hlutverk þessa gjalds er margþætt, bæði að stýra flæði en líka að tryggja þjóðinni ákveðna hlutdeild, það er alveg ljóst að þeir ferðamannastaðir sem flestir sækja eru í eigu ríkisins, aðgengi að þeim hefur verið ókeypis, á því þarf að verða breyting en þó ekki þannig að Íslendingar greiði fyrir það heldur þeir sem koma hér um langan veg til þess að heimsækja þessa staði. Það í sjálfu sér er eðlilegt að þegar ríkið á einhvern hátt afhendir auðlindir sínar til atvinnufyrirtækja til þess að þau geti nýtt þær, að það komi í staðinn einhverskonar árgjald,“ sagði Daði í morgun í samtali við fréttastofu. Ekki Íslendingar segirðu, er þetta þá einhverskonar gjald á ferðamenn einungis? „Gjald á ferðamenn einungis.“ Hvernig virkar það? „Þetta verður aðgöngumiður sem verður tryggður og það eru mjög víða fordæmi fyrir sambærilegri gjaldtöku. Þetta er verkefni á hendi atvinnuvegaráðherra sem ég held að yrði skynsamlegt að þú spyrðir út í nákvæmlega nánari útfærslur á því.“
Ferðaþjónusta Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Rekstur hins opinbera Efnahagsmál Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs. 7. september 2026 10:27 Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. 7. september 2026 10:15 Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira
Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs. 7. september 2026 10:27
Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. 7. september 2026 10:15