Úlfur Úlfur, Aron Can og Emmsjé Gauti í beinni upp á Esjunni Stefán Árni Pálsson skrifar 7. júní 2017 15:30 Frá tónleikunum á Esjunni fyrir ári síðan.
Farsímafyrirtækið Nova stendur fyrir tónleikum neðan við Stein á Esjunni á morgun fimmtudag klukkan 18.00. Úrvalslið listamanna kemur fram á tónleikunum en plötusnúðurinn Þura Stína sér um að hita viðstadda upp áður en rapparar taka við en fyrstir í röðinni eru Úlfur Úlfur, næstur Aron Can og sá þriðji Emmsjé Gauti. Það verður því mikið um hressandi tóna á fjallinu og hvetur Nova tónleikagesti til að koma vel búnir til að njóta sín sem best. Hægt verður að ganga upp að tónleikastaðnum en fyrir þá gesti sem vilja fljúga verður þyrluþjónustan Helo með þyrluferðir upp og kostar ferðin upp kr. 6500,- og kr. 6500,- niður. Ferðin hvora leið kostar kr. 5500,- ef greitt er með AUR appinu en tónleikagestir sem ætla að nýa sér þyrluna eru hvattir til að kaupa miða fyrirfram inni á www.tix.is. „Þetta er í fjórða skipti sem við höldum tónleika á Esjunni og það hefur alltaf tekist mjög vel og mikil ánægja hjá tónleikagestum og skipuleggjendum. Við vonumst auðvitað til að sjá sem flesta og hvetjum fólk til að taka alla fjölskylduna og vini með á fjallið. Svo ef að einhverjir eru með erlenda gesti er þetta góð leið til að sýna þeim fallegt umhverfi, flott tónlistarfólk og Íslendinga í stuði,“ segir Magnús Árnason markaðsstjóri Nova. Áætlað er að tónleikunum ljúki klukkan 21.30 og lofar veðurspáin fyrir kvöldið góðu. „Það er þó alltaf vissara að hafa hlýju fötin með og auðvitað koma í góðum skóm. Þetta verður hörkufjör fyrir allan aldur,“ segir Magnús. Vísir mun sýna frá tónleikunum á morgun í samstarfi við Nova.
Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Sjá meira