Ferðir árásarmannsins í Manchester kortlagðar frekar Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. maí 2017 23:15 Lögregluþjónar við störf í Manchester í dag í tengslum við árásina þar í borg á mánudag. Vísir/AFP
Salman Abedi er talinn hafa verið á ferðinni með þessa tösku nálægt miðborg Manchester fáeinum dögum fyrir árásina.Vísir/AFP Lögregla í Manchester handtók í dag 23 ára gamlan mann í Sussex í Englandi í tengslum við hryðjuverkin í Manchester. Þá sendu lögregluyfirvöld frá sér nýja mynd af árásarmanninum sem sýnir hann draga á eftir sér bláa ferðatösku fáeinum dögum fyrir árásina. Í frétt breska daglaðsins The Guardian kemur fram að maður hafi verið handtekinn í bænum Shoreham-by-Sea í Sussex í suðurhluta Englands í dag í tengslum við árásina. Maðurinn, sem talinn er vera hinn 23 ára gamli Ala Zakry, rekur Hasoub Alafak, svokallað sölutorg á internetinu sem hefur bækistöðvar í Trípólí, höfuðborg Líbýu. Í dag sendi lögregla einnig frá sér nýja mynd úr öryggismyndavél sem sýnir árásarmanninn, Salman Abedi, draga á eftir sér bláa ferðatösku. Talið er að myndin hafi verið tekin einhvern tímann á tímabilinu 18.-22. maí. Þá hefur lögregla einnig sent frá sér myndband úr öryggismyndavél búðar í grennd við íbúðina sem Abedi hafðist við í örfáum klukkutímum fyrir árásina. Í myndbandinu sést maður, sem talinn er vera Abedi, versla í búðinni. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær myndbandið er tekið upp.Leit stendur yfir í ruslahaug í nágrenni Manchester-borgar.Vísir/AFPLögregla hefur einnig athafnað sig á Rusholme-svæðinu í Manchester, þar sem árásarmaðurinn er talinn hafa haldið til í aðdraganda árásarinnar. 14 eru nú í haldi lögreglu vegna hryðjuverkanna á mánudag. Leit stendur einnig yfir í ruslahaug í Pilsworth í Bury í grennd við Manchester í tengslum við árásina. Vika er nú síðan hinn 22 ára Salman Abedi sprengdi sig í loft upp við inngang Manchester Arena. Mikill mannfjöldi kom saman á bænavöku í Manchester í dag til að minnast þeirra sem létust í árásinni. Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Bretlandi eru 52 enn þá á sjúkrahúsi vegna árásarinnar og þar af 19 í lífshættu.
Hryðjuverk í Manchester Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi slasaðra í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira