Þurfa meiri pening fyrir nærri tvöfaldan árgang Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 16. janúar 2017 07:00 Á Háskólatorgi. vísir/Anton Brink
Þar sem framhaldsskólanám hefur verið stytt í þrjú ár munu flestir nemendur fæddir árin 1998 og 1999 útskrifast úr framhaldsskóla á sama tíma, haustið 2018. Þetta þýðir að ásókn í háskóla landsins gæti orðið nærri tvöfalt meiri en gengur og gerist það haustið. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir skólann hafa verið að undirbúa sig fyrir nærri tvöfalda innritun. Miðað við forsöguna ætti skólinn þó að ráða við hana. „Í kjölfar hrunsins tókum við inn á einu bretti stóran hóp um áramót. Það gekk ágætlega,“ segir hann.Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.vísir/pjeturÞá bendir Jón Atli á að þótt flestir framhaldsskólar landsins hafi lokið innleiðingu nýrrar aðalnámsskrár skólaárið 2015 til 2016 hafi tveir skólar fengið undanþágu, Menntaskólinn á Akureyri og Menntaskólinn í Reykjavík. „Það þýðir að árgangurinn verður ekki alveg tvöfaldur heldur dreifist þetta aðeins meira. Við gerum þó ráð fyrir því að það verði mun stærri árgangur haustið 2018 en venjulega,“ segir Jón Atli. Til undirbúnings hefur skólinn meðal annars farið yfir inntökukröfur sínar. „Það er það sem skiptir máli. Að nemendur uppfylli þær kröfur vegna þess að styttingin hefur mögulega áhrif á innihald náms,“ segir Jón Atli og bætir því við að ef inntak námsins sé gott og nemendur uppfylli kröfurnar ætti skólinn að ráða við stærð árgangsins. Síðastliðið haust söfnuðust þúsundir undirskrifta þar sem skorað var á stjórnvöld að auka útgjöld til háskóla landsins. „Ef það verða mun fleiri nemendagildi mun þurfa sérstakan stuðning vegna þess. Við erum undirfjármögnuð og það þarf að spýta verulega í,“ segir Jón Atli. Hann kveðst ekki hafa hitt nýjan menntamálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, eftir að hann tók við embætti, en vonast til að gera það fljótlega svo hægt sé að fara yfir málin.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira