Telur ekki grundvöll fyrir rekstri Hamra Sveinn Arnarsson skrifar 16. janúar 2017 07:00 "Allt frá upphafi starfsemi Hamra á síðari hluta árs 2013 hefur fjárhagslegur rekstur hjúkrunarheimilisins verið mjög erfiður,“ segir í minnisblaði um rekstur Hamra. vísir/ernir
Allt að sjö milljarða vantar til öldrunarheimila landsins frá hinu opinbera eigi heimilin að uppfylla það þjónustustig sem landlæknisembættið telur eiga að vera, að mati Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Mörg öldrunar- og hjúkrunarheimili eru mjög illa sett fjárhagslega og mörg sveitarfélög hlaupa undir bagga með það sem upp á vantar, sem hið opinbera ætti í raun að greiða. Á bæjarráðsfundi í Mosfellsbæ síðastliðinn fimmtudag var rekstrarvandi hjúkrunarheimilisins Hamra í Mosfellsbæ ræddur. „Allt frá upphafi starfsemi Hamra á síðari hluta árs 2013 hefur fjárhagslegur rekstur hjúkrunarheimilisins verið mjög erfiður. Daggjöld frá ríki hafa ekki hrokkið fyrir útgjöldum,“ segir í minnisblaði um rekstrarvanda Hamra sem var lagt fyrir bæjarráð. Í minnisblaðinu er vitnað í yfirlýsingu framkvæmdastjóra Hamra, Sigurðar Rúnars Sigurjónssonar, sem segir að velferðarráðuneytið hafi hafnað erindi þeirra um leiðréttingu á ýmsum þáttum sem snéru að rekstrinum og að áfram verði ekki við unað. „Rekstrargrundvöllur fyrir heimilið er því ekki til staðar,“ segir Sigurður Rúnar.Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherraÓttarr Proppé heilbrigðisráðherra segir um einn og hálfan milljarð hafa verið settan í málaflokkinn aukalega á ársgrundvelli vegna áranna 2016-2018. „Það er stefna stjórnarinnar, eins og kemur fram í stjórnarsáttmálanum, að gera betur í málaflokknum. Nýr rammasamningur var settur á laggirnar og öll hjúkrunarheimilin sögðu sig inn á þann samning,“ segir Óttarr. „Einnig hafa lífeyrisskuldbindingar verið teknar af þeim sem er heilmikill pakki. Því hefur margt verið gert en við ætlum að halda áfram og gera betur í málaflokknum.“ Pétur Guðmundsson, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, segir kostnaðargreiningu á þjónustuþörf þeirri sem landlæknisembættið taldi æskilega hafa hljóðað upp á um 40.000 krónur fyrir daginn. Hins vegar greiði hið opinbera ekki nema um 27.000 krónur fyrir daginn. Því sé eðlilegt að mörg hjúkrunarheimili séu í vanda og standi illa fjárhagslega.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira