TF-SIF send til Miðjarðarhafs vegna erfiðra rekstrarhorfa atli ísleifsson skrifar 16. janúar 2017 13:46 Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, hélt um helgina til Grikklands. landhelgisgæslan
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, hélt um helgina til Grikklands þar sem hún og áhöfnin munu næstu vikurnar sinna landamæraeftirliti á austanverðu Miðjarðarhafi fyrir Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu, Frontex. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að til að byrja með verði flugvélin í Miðjarðarhafsverkefnum til 20. febrúar en til skoðunar sé að þau verði framlengd þar til í lok mars. Þá komi til greina að vélin sinni aftur verkefnum á svæðinu fyrir Frontex með haustinu. „Landhelgisgæslan hefur áður sinnt margvíslegum verkefnum fyrir Frontex en undanfarna mánuði hefur óvissa ríkt um framhaldið. Í byrjun ársins óskaði Frontex eftir flugvél frá aðildarríkjunum í verkefni með mjög stuttum fyrirvara. Í ljósi fjárhagsstöðu Landhelgisgæslunnar var ákveðið að bregðast við beiðninni og eftir stuttar samningaviðræður var TF-SIF send út. Rekstrarhorfur Landhelgisgæslunnar fyrir árið 2017 eru erfiðar og hefur þegar verið gripið til aðgerða til að haga starfseminni í samræmi við fjárheimildir. Meðal annars hafa samningar við lausráðna starfsmenn ekki verið endurnýjaðir og dregið hefur verið úr rekstrarkostnaði á öllum sviðum. Reynt verður af fremsta megni að halda úti lágmarksþjónustu. Enn er of snemmt að segja hvort sértekjur af erlendum verkefnum skili sér að því marki sem ný rekstraráætlun Landhelgisgæslunnar gerir ráð fyrir. Það ætti þó að skýrast á næstu vikum. Beðið verður með frekari aðhaldsaðgerðir í rekstri stofnunarinnar uns endanleg niðurstaða um erlend verkefni á árinu liggur fyrir,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira