Obama sat fyrir svörum á ráðstefnu arkitekta í Orlando í Flórídaríki. Sagði hún þar meðal annars að stjórnmál væru krefjandi.
„Það er allt í góðu þangað til þú ferð í framboð, þá koma klærnar í ljós.“
Hún sagði að hún myndi ekki vilja leggja það á dætur þeirra hjóna að fara í framboð.
„Ég myndi ekki biðja börnin mín að gera þetta aftur því þegar þú býður þig fram í svona stórt embætti þá snýst þetta ekki bara um þig, heldur alla fjölskylduna,“ sagði hún en bætti við að starf í þágu almennings væri fjölskyldunni í blóð borið.
Erfitt að kveðja Hvíta húsið
Obama forðaðist að nefna Donald Trump Bandaríkjaforseta á nafn á viðburðinum en talaði þó stuttlega um „nýja forsetann.“Hún sagði að erfitt hefði verið að kveðja Hvíta húsið, þann stað sem hún hefði búið lengst á yfir ævina.
„Ég vildi ekki vera með tár í augunum því fólk myndi halda að ég væri grátandi yfir nýja forsetanum,“ sagði hún.
Hún sagði jafnframt að lífið væri öðruvísi eftir flutningana. Dætur þeirra geti nú opnað gluggana á herbergjum sínum og fjölskylduhundarnir verði ringlaðir þegar þeir heyri í dyrabjöllunni, en það er ekki hljóð sem heyrist innan Hvíta hússins.