Krúttlegar kindur slá í gegn Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 8. maí 2017 11:00 Guðveig Jóna bjóst ekki við að kindurnar vektu jafn mikla athygli og raun varð á. MYND/GVA
Ástæðan fyrir því að þær vinkonurnar prjónuðu kindurnar var einfaldlega sú að þær langaði að finna verkefni sem þær gætu unnið saman í hópi Guðveig Jóna hefur verið í saumaklúbbi með fyrrum samstarfskonum sínum á Hótel Óðinsvéum í nær tvo áratugi. Þær eru alltaf með eitthvað skemmtilegt á prjónunum og nú síðast prjónuðu þær kindur sem urðu samstundis frægar á internetinu. „Ég setti til gamans mynd af kindunum inn á facebook-síðu sem heitir Handóðir prjónarar og þær vöktu svakalega athygli, sem ég átti ekki von á. Þær eru ofsalega flottar og skemmtilegar og margir hafa haft samband við mig og vilja gjarnan fá uppskriftina,“ segir Guðveig, sem einnig hefur fengið ótal beiðnir um að prjóna kindur og selja. Hún segist þó ekki hafa áhuga á að fjöldaframleiða kindina, sem hægt er að nota sem púða eða einfaldlega til að prýða heimilið, þótt eftirspurnin sé mikil.Kindin er bandarísk Ástæðan fyrir því að þær vinkonurnar prjónuðu kindurnar var einfaldlega sú að þær langaði að finna verkefni sem þær gætu unnið saman í hópi. „Ég fór á netið að skoða prjónauppskriftir og fann þessa tilteknu uppskrift á bandarískri vefsíðu. Mér leist strax vel á hana og þýddi uppskriftina á íslensku og svo prjónuðum við þessar kindur í sameiningu og hjálpuðumst að. Ég hafði samband við hönnuðina og þá sem voru með uppskriftina á heimasíðu sinni úti í New York í kjölfar þess að fleiri vildu fá uppskriftina og fékk leyfi til að þýða hana á íslensku og deila henni áfram.“Undanfarin ár hefur Guðveig Jóna tekið þátt í Handverkshátíð Eyjafjarðar.Unnu saman í gamla dagaSaumaklúbburinn á sér langa sögu en hann varð til eftir að þær stöllur hættu störfum hjá Hótel Óðinsvéum fyrir mörgum árum en vildu þó halda áfram hópinn. „Við hittumst á þriggja vikna fresti og höfum lengi haldið vinskap. Tilgangurinn er einfaldlega að hittast, rækta vináttuna og spjalla um daginn og veginn. Við erum misduglegar að prjóna en við höfum farið saman á saumanámskeið og svo lærum við heilmikið hver af annarri. Núna erum við að byrja að prjóna sjöl eftir sömu uppskrift. Fyrir nokkrum árum féll ein úr klúbbnum frá eftir veikindi og ein okkar ákvað að prjóna aukalega kind í minningu hennar,“ segir Guðveig, en auk hennar eru þær Þórunn Guðmundsdóttir, Oddrún Sverrisdóttir, Elín Ryan, Viktoría Dagbjartsdóttir og Guðrún Rut Gunnlaugsdóttir í saumaklúbbnum.Hannar töskur Guðveig er mikil prjónakona og hefur alltaf haft áhuga á handverki. Hún vinnur við bókhald á daginn en sinnir áhugamálinu þegar tími vinnst til, helst um kvöld og helgar. „Ég hef verið að hanna og sauma töskur úr leðri, roði og góbelíni í nokkur ár og er með sölusíðu á Facebook undir nafninu mínu. Ég hef nokkrum sinnum verið með bás á Handverkshátíð Eyjafjarðar, ásamt Eddu Ásvaldsdóttur, mágkonu minni, sem er líka að hanna og sauma töskur. Við lærðum báðar réttu handtökin hjá tengdamóður minni, Eddu Jónsdóttur, sem var brautryðjandi í þessu á sínum tíma. Ég hef mjög mikla ánægju af þessu.“
Mest lesið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Útför Megasar Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Fleiri fréttir Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Sjá meira