Enn ein handboltasýningin hjá stelpunum hans Þóris á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2017 21:01 Stine Bredal Oftedal skorar eitt marka sinna í kvöld. Vísir/Getty
Norska kvennalandsliðið í handbolta vann átkán marka stórsigur á Tékklandi í kvöld, 34-16, á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. Norsku stelpurnar hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína á mótinu með samtals 56 mörkum eða með 14 mörkum að meðaltali í leik. Norska liðið er þó ekki búið að tryggja sér sigur í riðlinum því Noregur og Svíþjóð spila hreinan úrslitaleik um efsta sætið í lokaumferðinni. Norsku stelpurnar voru 20-7 yfir í hálfleik og voru komnar í 26-9 í seinni hálfleiknum. Tékkar náðu aðeins að laga stöðuna áður en norska liðið gaf aftur í og kláraði leikinn sannfærandi. Stine Bredal Oftedal, fyrirliði norska liðsins, var kosin besti maður leiksins í kvöld. Hún skoraði sex mörk en Nora Mörk var markahæst með sjö mörk. Öll mörk Noru Mörk komu í fyrri hálfleiknum. Spánn og Frakkland gerðu 25-25 jafntefli í lokaleik kvöldsins í A-riðlinum en bæðin liðin eru búin að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum eins og Rúmenía og Slóvenía.Úrslit á HM kvenna í handbolta í dag:A-riðill Paragvæ - Slóvenía 22-28 Rúmenía - Angóla 27-24 Spánn - Frakkland 25-25Stig þjóða: Rúmenía 8 Slóvenía 6 Frakland 5 Spánn 5 Angóla 0 Paragvæ 0B-riðill Pólland - Ungverjaland 28-31 Svíþjóð - Argentína 38-24 Tékkland - Noregur 16-34Stig þjóða: Noregur 8 Svíþjóð 6 Ungverjaland 4 Tékkland 4 Pólland 2 Argentína 0
Handbolti Mest lesið Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Íslenski boltinn Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Golf „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Fótbolti Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Sport Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira