Sádar saka Írani um berar árásir Samúel Karl Ólason skrifar 7. nóvember 2017 16:22 Hermenn úr bandalagi Sáda í Jemen. Vísir/AFP
Krúnuprins Sádi-Arabíu, Mohammed bin Salman, segir Íran hafa gert árásir gegn landi sínu með því að útvega uppreisnarmönnum í Jemen eldflaugar. Í raun væri hægt að líta á það sem stríðsyfirlýsingu. Sádar skutu eldflaug niður á laugardaginn sem skotið hafði verið frá Jemen og á Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu. Mohammed bin Salman segir að meðlimir Hezbollah hafi skotið eldflauginni frá yfirráðasvæði Húta í Jemen. Eldflaugin stefndi á flugvöll en var skotin niður skömmu áður en hún lenti. Engan sakaði. Íranar neita því að hafa veitt uppreisnarmönnum og þar á meðal Hútum, sem berjast gegn ríkisstjórn Jemen sem Sádar styðja, vopn og eldflaugar. Javad Zarif, utanríkisráðherra Íran, sagði í gær að stríð Sádi-Arabíu og hrottaháttur ógnaði Mið-Austurlöndum. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að líklegast sé eldflaugaskotið stríðsglæpur þar sem árás hafi verið gerð á borgaralegan flugvöll. Eftir eldflaugaskotið lokuðu Sádar og bandamenn þeirra öllum landamærastöðvum, flugvöllum og höfnum Jemen. Sádar sögðu að hjálpargögnum yrði hleypt inn í landið, en Sameinuðu þjóðirnar segja að tvær sendingar hafi verið stöðvaðar í gær.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira