Handbolti

FH vill taka vítin í Helsinki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ásbjörn Friðriksson tekur hér víti fyrir FH. Hann fer líklega á punktinn gegn St. Petersburg.
Ásbjörn Friðriksson tekur hér víti fyrir FH. Hann fer líklega á punktinn gegn St. Petersburg. vísir/ernir
Eins og fram kom í dag þá hefur Áfrýjunardómstóll EHF úrskurðað að FH og St. Petersburg skuli mætast í vítakastkeppni til að skera úr um hvort liðið fari í þriðju umferð EHF-bikarsins.

Mistök voru gerð í síðari leik liðanna í Rússlandi er leikurinn var sendur í framlengingu en ekki í vítakeppni eins og lög gera ráð fyrir. Þar hafði FH betur en málið var kært og EHF breytti úrslitunum. Liðin þurfa að hittast aftur til þess að fara í vítakeppni.

„Það er hægt að áfrýja þessu til annars dómsstigs en það er ekki til neins. Nú verðum við bara að taka þessu og finna út úr því hvernig sé best að gera þetta,“ segir Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, og er eðlilega ósáttur.

Í dómnum kemur ekki fram hvar og hvenær þessi sögulegi viðburður eigi að fara fram. Ásgeir mun ræða það mál við EHF og rússneska félagið á morgun.

„Við munum leggja það til að vítakastkeppnin fari fram í Helsinki. Það er þriggja og hálfs tíma lest fyrir þá og þriggja tíma flug fyrir okkur. Þá losnum við líka við tíu daga vegabréfsumsóknir til Rússlands. Að klára þetta í Helsinki væri sanngjarnt. Það er stórmál að fara alla leið aftur til Rússlands,“ segir Ásgeir.

EHF ætlar að bera kostnaðinn vegna þessa klúðurs. FH-ingar segja að alls konar kostnaður komi til út af þessu og þeir vilja fá endurgreidda hverja einustu krónu.

„Við munum leggja fram kostnaðaráætlun um allt sem viðkemur nýrri ferð. Ofan á ferðakostnaðinn er líka vinnutap meðal annars. Ef við förum áfram viljum við líka skaðabætur því það er ljóst að það er orðið dýrara að bóka flug og hótel núna. Það kemur skýrt fram að þeir munu bera allan kostnað sem og afleiðingakostnað. Við erum ekki að fara fram á neitt óeðlilegt. Við viljum bara að allir fái sitt því þetta er verulegt tjón fyrir okkur. Við munum sækja það af fullri hörku.“




Tengdar fréttir

3.000 km fyrir þrjár mínútur

FH þarf að fara aftur til St. Pétursborgar í Rússlandi til þess að taka eina vítakastkeppni. Ekki gott mál fyrir íþróttina segir formaður handboltans hjá FH.

FH áfrýjar úrskurði EHF

FH hefur ákveðið að áfrýja úrskurði dómstóls EHF, evrópska handknattleikssambandsins, er varðar seinni leik liðsins gegn St. Petursburg í 2. umferð EHF-bikarsins í handbolta.

FH þarf að ferðast til Rússlands til að fara í vítakeppni

FH þarf að fara í vítakastkeppni við St. Petursburg til að knýja fram úrslit í viðureign liðanna í 2. umferð EHF-bikarsins í handbolta. FH-ingar þurfa því að ferðast til St. Pétursborgar til þess eins að fara í vítakeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×