Umferðareftirlit á þjóðvegum landsins ekki með fjármagn Jóhann Óli Eiðsson skrifar 3. ágúst 2017 06:00 Féð var hugsað til þess að ráða inn menn sem sinntu eingöngu umferðareftirliti. vísir/vilhelm
Þriðja sumarið í röð er umferðareftirlit lögreglunnar í mýflugumynd miðað við árin á undan. Fjármagn til verksins er þrefalt minna en áður var þrátt fyrir að umferðarþungi hafi aukist jafnt og þétt, í takt við aukinn fjölda ferðamanna sem aka á vegum landsins. Árið 2005 var undirritað samkomulag um aukið umferðareftirlit lögreglunnar á þjóðvegi 1. Annars vegar á vegum frá Reykjavík og að Hvolsvelli og hins vegar frá höfuðborginni og norður á Húsavík. Samningurinn var gerður á grundvelli nýgerðrar umferðaröryggisáætlunar. Fjörutíu milljónir króna voru í upphafi eyrnamerktar verkefninu og engu öðru.Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögreglumaður.Vísir/Anton Brink„Sá peningur var hrein viðbót og fór bara í umferðareftirlitið,“ segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögreglumaður. Starfsemi lögreglunnar er á fjárlögum og á sú upphæð sem þar kemur fram að dekka starfsemina. Viðbótarupphæðinni var ætlað að auka umferðaröryggi á landinu, draga úr vímuefna- og hraðakstri og sporna þar með við slysum og dauðsföllum. Áætlað var að með átakinu væri unnt að koma í veg fyrir fjögur til fimm dauðsföll árlega. „Hugmyndin var sú að hægt væri að ráða inn aukamenn á álagstímum, frá maí og fram í september, sem myndu sinna umferðareftirliti og engu öðru. Þeir kæmu því ekki að öðrum verkefnum,“ segir Vilhjálmur. Sjálfur sinnti hann slíku eftirliti á árum áður. Þingmaðurinn segir að síðastliðin tvö ár hafi liðurinn ekki verið fjármagnaður líkt og áður og eftirlitið því ekkert miðað við það sem það var. Upphæðin hafi hækkað þar hún hafi snögglega verið lækkuð. „Satt best að segja kann ég enga skýringu á því hvers vegna þessi liður datt út af fjárlögum og fjármálaáætlun. Það hefur bara einhvern veginn farist fyrir,“ segir Vilhjálmur. Líkt og alþekkt er hefur ferðamönnum hér á landi fjölgað mjög á undanförnum árum. Stór hluti þeirra leigir bíl og ekur um vegi landsins og umferð á þeim hefur aukist í samræmi við það. Þingmaðurinn telur ljóst að grípa verði inn í. „Síðastliðin tvö ár hafa heyrst neyðaróp frá lögreglunni og þessu hefur verið bjargað með því að úthluta neyðarfé og skúffufé. Upphæðin er hins vegar aðeins þriðjungur af því sem áður var,“ segir Vilhjálmur og kallar eftir því að þetta verði leiðrétt á komandi þingi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira