Ölvuð með börnin laus í bílnum Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. júlí 2017 06:20 Ökumaður var grunaður um ölvun við akstur og hafði börn sín laus í bílnum. Vísir/Eyþór
Bifreið var stöðvuð á Reykjanesbraut við Sprengisand rétt eftir 17 í gær. Ökumaðurinn var grunaður um ölvun við akstur og var með börn sín tvö, 5 og 6 ára, í bifreiðinni. Börnin voru ekki fest með sérstökum öryggisbúnaði. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaðurinn, sem var móðir barnanna, og börnin voru færð á lögreglustöð. Þangað mættu svo fulltrúi barnaverndar og faðir barnanna en ökumaðurinn var látinn laus að lokinni sýnatöku. Þá var bifreið stöðvuð í Auðbrekku rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi en ökumaðurinn var aðeins 16 ára og hafði því aldrei öðlast ökuréttindi. Hann var einnig grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna auk vörslu fíkniefna. Ökumaðurinn, ásamt farþega í bifreiðinni, var fluttur á lögreglustöð þar sem málið var unnið með aðkomu foreldra og tilkynningu til barnaverndar. Ökumaður bifreiðar, sem stöðvuð var á Lambhagavegi við Reynisvatn laust fyrir 18 í gær, var einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var sviptur ökuréttindum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Sjá meira