Matur

Í eldhúsi Evu: Tandoori-kjúklingur með naan-brauði og raita-sósu

Eva Laufey skrifar
Dásamlegur indverskur réttur.
Dásamlegur indverskur réttur. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að tandoori-kjúklingi.

Tandoori-kjúklingur

700-800 g kjúklingakjöt, helst læri

2 hvítlauksrif

4 cm engifer, ferskt

200 g ab mjólk

1 tsk paprika

1 tsk garam masala

1 tsk salt

½ tsk pipar

1 tsk kóríander

1 tsk túrmerik



Aðferð: 1. Rífið niður engifer og hvítlauk í skál, hellið ólífuolíunni saman við og hrærið vel. 2. Bætið kryddunum saman við og hrærið. Því næst fer ab mjólkin eða hreint jógúrt út í og öllu blandað vel saman. 3. Skerið rákir í kjúklingakjötið áður en þið setjið kjötið út í marineringuna. 4. Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið í ísskáp í nokkrar klukkustundir, best yfir nótt. 5. Hitið grillpönnu eða útigrillið, takið kjúklingakjötið úr marineringunni og grillið á mjög heitri pönnu eða grilli í 5-7 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. 6. Saxið niður ferskan kóríander og sáldrið yfir kjúklinginn áður en hann er borinn fram.



Naan brauð

150 ml volgt vatn

200 g hveiti

2 tsk þurrger

1 tsk hunang

1 tsk salt

3 msk ab mjólk

1 msk ólífuolía

1msk brætt smjör

1 msk ólífuolía

1 hvítlauksrif

½ tsk salt

1 tsk smátt söxuð steinselja



Aðferð:

1. Blandið vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki standa yfir skálina og um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerið tilbúið.

2. Bætið því næst hveitinu, saltinu, ab mjólkinni og ólífuolíunni saman við og hrærið vel saman. Stráið smá hveiti á borð og hnoðið þar til deigið verður samfellt og fínt, leyfið deiginu að hefast í klukkustund.

3. Skerið deigið í litla bita og mótið kökur, þær eiga að vera fremur þunnar.

4. Steikið á heitri pönnu á hvorri hlið í 1-2 mínútur.

5. Blandið saman í skál, smjöri, olíu, salti, steinselju og hvítlauk og penslið á naan brauðin þegar þau eru nýsteikt. Það gefur þeim dásamlegan hvítlaukskeim! Má auðvitað sleppa því ef þið eruð ekki hrifin af hvítlauk.



Raita sósa

250 g ab mjólk

½ agúrka

salt og pipar 2 msk

smátt saxaður kóríander



Aðferð: Saxið hráefnin afar smátt og blandið öllu vel saman í skál, geymið helst í kæli í smá stund áður en þið berið sósuna fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×