Innlent

Lögreglan leitar manns sem framdi vopnað rán í Kauptúni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögreglan leitaði meðal annars að manninum í Vallahverfi.
Lögreglan leitaði meðal annars að manninum í Vallahverfi. Vísir/Eyþór
Maður var rændur í Kauptúni síðdegis í dag, nálægt verslun Ikea, en lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins og voru sex bílar sendir á vettvang.

Að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, hafði lögreglan vísbendingar, sem bentu til þess að ræningjann væri að finna í Vallarhverfi, þar sem fjórir lögreglubílar voru á vettvangi við leit að hinum grunaða, um klukkan hálf fimm í dag.

Leit stendur enn yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×