Skipaði blaðamanni að hætta að hrista höfuðið Kjartan Kjartansson skrifar 28. mars 2017 19:34 Sean Spicer þrætti fyrir að Hvíta húsið glímdi við Rússavanda á blaðamannafundi í dag. Vísir/EPA
Blaðafulltrúi Hvíta hússins virtist missa stjórn á sér þegar blaðamaður gekk á hann með spurningum um Donald Trump Bandaríkjaforseta og Rússland. Þrætti hann fyrir að Hvíta húsið glímdi við rússneskt vandamál og skipaði blaðamanninum að hætta að hrista höfuðið yfir svörum sínum. Bandaríska alríkislögreglan (FBI) og leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings rannsaka nú möguleg tengsl Trump og samstarfsmanna hans við rússneska embættismenn. Þrátt fyrir það brást Sean Spicer, blaðafulltrúi Hvíta hússins, illur við spurningum um málið á blaðamannafundi í dag. April Ryan, blaðakona frá American Urban Radio Networks, spurði Spicer út í vandamál Hvíta hússins vegna meintra tengsla við Rússland en Spicer vildi ekki fallast á að það glímdi við neitt slíkt vandamál. „Nei, við höfum það ekki,“ sagði Spicer sem sakaði Ryan um að láta stjórnast af eigin viðhorfum og lagði til að hún segði frekar frá staðreyndum. Hafði hann einnig orð á því að Ryan hristi höfuðið yfir svörum hans. „Vinsamlegast hristu ekki höfuðið aftur,“ sagði Spicer við Ryan. Washington Post segir að margir blaðamenn sem voru viðstaddir hafi gert athugasemd við framferði Spicer á samfélagsmiðlum sem þeir túlkuðu sem niðrandi í garð Ryan. Spicer var hins vegar ekki hættur að gera lítið úr tengingum Trump og félaga við Rússland. „Ef forsetinn setur rússneska dressingu á salatið sitt í kvöld þá verður það einhvern veginn tengsl við Rússland,“ fullyrti Spicer.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira