Stýrir nemendasýningu DWC í tíunda skipti Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 16. mars 2017 12:15 Nemendur búa sig undir sýningu. Vísir/Anton
Þetta er tíunda skipti sem ég set upp nemendasýningu Dansstúdíós World Class,“ segir Stella Rósenkranz, deildarstjóri og danskennari hjá Dansstúdíó World Class, eða DWC, en nemendasýning skólans fer fram í Borgarleikhúsinu dagana 18. og 21. mars. Undanfarin ár hefur DWC sett upp skemmtilega sýningu byggða á líflegum ævintýrum sem börnin þekkja vel og hefur undirbúningur sýningarinnar oftar en ekki verið hápunktur nemenda yfir önnina. „Undirbúningur gengur vel, við erum að setja upp Kalla og súkkulaðiverksmiðjuna, sem hefur verið á planinu síðustu fimm ár, einfaldlega vegna þess að það er uppáhaldsævintýrið mitt. Síðustu tíu ár höfum við farið í alls konar ævintýraheima. Í ár erum við með frumsamið handrit eftir kvikmyndinni Kalli og súkkulaðiverksmiðjan þar sem Johnny Depp lék aðalhlutverkið,“ segir Stella. Björn Bragi Arnarsson, uppistandari og fjölmiðlamaður, sér um kynningu á sýningunni.Tíunda skipti sem Stella setur upp nemendasýningu Dansstúdíós World Class.„Hann hefur verið sögumaður sýningarinnar síðustu ár og alltaf slegið í gegn, hann er einstaklega góður í því og fær allan salinn með sér,“ segir hún og bætir við að sérstaða skólans sé sú að þau hafi frumsamið handrit þar sem nemendur skólans fá að spreyta sig í leiklistinni og fara með aðalhlutverk sögupersóna ævintýrsins á stóra sviði Borgarleikhússins. Alls verða sex sýningar á tveimur dögum, en nemendum skólans hefur verið skipt niður á sýningar eftir því hvar þau æfa, þar sem fjöldinn er svo mikill. „Skólinn hefur stækkað rosalega, en í ár erum við með átta hundruð nemendur og höfum við því tekið þá ákvörðun að skipta nemendum niður á sýningar eftir því hvar þau æfa svo allir fái að njóta sín,“ segir Stella. Danshópur skólans mun koma fram, en hópurinn hefur vakið talsverða athygli síðustu misseri. Hópurinn hefur verið áberandi í tónlistarmyndböndum og nú síðast tóku nokkrir einstaklingar úr hópnum þátt í söngvakeppni sjónvarpsins sem fram fór á RÚV um síðustu helgi. „Það er mikil stemning í skólanum og allir virkilega spenntir. Það er óhætt að segja að sýningin verður góð skemmtun fyrir bæði þá sem tengjast skólanum og þá sem hafa gaman af því að fara með börnin sín á líflega og skemmtilega danssýningu. Hildur Kristín Stefánsdóttir söngkona kemur og tekur lagið í lok sýningarinnar,“ segir Stella en hægt er að frá frekari upplýsingar um sýninguna, ásamt því að panta miða, á tix.is.
Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira