Lífið

Ari fékk þær fréttir að hann væri að fá nýtt hjarta og viðbrögðin voru yndisleg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ari er heldur betur sáttur ungur drengur í dag.
Ari er heldur betur sáttur ungur drengur í dag.
Ari hafði beðið í 211 daga eftir að gangast undir hjartaígræðslu og loksins kom dagurinn hjá þessum fimm ára Bandaríkjamanni.

Foreldrar hans tóku upp viðbrögðin þegar hann fékk fréttirnar og má með sanni segja að tilfinningarnar báru hann ofurliði og vissi hann í raun ekkert hvernig hann átti að haga sér.

Hann fékk fréttirnar á barnaspítalanum í Boston á dögunum og var drengurinn heldur betur ánægður með lífið og tilveruna.

Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband sem tekið var af drengnum þann 6. mars og ætla má að hann sé kominn með nýtt hjarta þegar þessi frétt er skrifuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×