Sannkölluð Öskubuskusaga Benedikt Bóas skrifar 10. febrúar 2017 06:45 Aðgerðin tókst vel og fór Öskubuska í göngutúr í gær, svolítið aum en hress og kát.
Hjartagangráð var komið fyrir í hundinum Öskubusku í vikunni og er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert hér á landi. Rúna Þórisdóttir er eigandi Busku, eins og hún er jafnan kölluð, en eiginmaður hennar er Hjörtur Oddsson hjartalæknir. „Það var að líða reglulega yfir hundinn og hún hefði dáið hefðum við ekki framkvæmt þessa aðgerð,“ segir Hjörtur en skömmu eftir áramót fór að bera á þessum kvilla. Stórt teymi kom að aðgerðinni og unnu læknarnir aðgerðina í sjálfboðavinnu. Alls tók þetta um þrjár klukkustundir en aðgerðin sjálf rúman klukkutíma. Buska var með það sem kallað er hægtaktur á hjartanu en þá virkar leiðslukerfið ekki sem skyldi.„Aðgerðin virðist hafa gengið vel. Busku líður vel en hún er að sjálfsögðu aum eins og við var að búast. Hún hefur farið út í göngutúr og er öll að braggast,“ segir hann og bætir við að svona aðgerðir séu sjaldan gerðar í Evrópu þótt hann viti til að þetta hafi verið gert í Svíþjóð. Svona aðgerðir eru algengari í Bandaríkjunum. Buska var með það sem kallað er hægtaktur á hjartanu en þá virkar leiðslukerfið ekki sem skyldi. Á fagmáli kallast svona „þriðju gráðu block“ og lýsti sér þannig að hjartslátturinn var orðinn alltof hægur. Þetta er vel þekkt vandamál í manneskjum og þá er oftast settur gangráður í viðkomandi en þetta er í fyrsta sinn sem svona aðgerð er gerð á ferfætlingi. Buska er rúmlega þriggja ára íslenskur hundur.Fyrir utan Hjört voru þeir Felix Valsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir, og hjartaskurðlæknirinn Gunnar Mýrdal viðstaddir aðgerðina auk dýralæknanna Jakobínu Sigvaldadóttur, Hönnu Arnórsdóttur og Agnesar Helgu Martin. Byrjað var á því að svæfa Busku og hún síðan rökuð. Næst var stungið á stóra hálsæð, vír settur niður í hjartað og gangráðurinn festur á kambinn. Hjörtur stóð straum af kostnaðinum og gerðu hinir læknarnir aðgerðina í frítíma sínum. „Með aðgerðinni björguðum við hundinum,“ segir Hjörtur. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira