Febrúarspá Siggu Kling – Fiskur: Ert á tímabili uppgjörs 3. febrúar 2017 09:00
Elsku fiskurinn minn. Ef það er eitthvað sem er að murka lífið úr hjartanu þínu þá er það þér að kenna, og þú hefur svo sannarlega vald til að skipta um skoðun og hafa þessa febrúarbíómynd alveg eins og þú vilt. Þú ert að setja orkuna þín í alltof margt. Einfaldaðu lífið, þá líður þér miklu betur. Það er svo mikilvægt fyrir þig, eins litríkur og þú ert, að þú eigir svolítið þitt svæði. Getir nýtt þér það að vera hellisbúi, hvílt þig meira og slökkt bara á símanum. Ég er nú viss um að ég sjái engan möguleika á að þú gerir það. Það er að hrúgast að þér fólk, og þér þykir mjög skrítið að það vilji vera í kringum þig. Þú ert að gefa frá þér svo mikla gleðitíðni og laðar þar af leiðandi að þér alls kyns fólk, sem vill koma og vera með þér í þessu partýi. Á þessu tímabili uppgjörs, sem það svo sannarlega er því að þú átt afmæli, þarft þú að skoða hverjir gleðja þig og hverjir græta þig. Þú færð svo mikið val á uppstokkun á fólki og þú munt nýta þér það án þess að sýna því nokkurn dónaskap. Það er algengt að þú sért listrænn úr því að þú ert svo heppinn að fæðast sem fiskur, og þeir sem að hafa nýtt sér þessa gjöf munu ná langt á þessu ári og mikill kraftur falla þeim í skaut nákvæmlega núna. Ný sambönd verða til hjá þeim sem eru á lausu og vita hvað þeir vilja. Gömul sambönd endurnýjast og verða sterkari. Þetta er skemmtilegt rock n‘ roll, mikið um boð og alls kyns skemmtanir. Og þú lendir í aðstæðum sem munu breyta svo mörgu í lífi þínu. Þetta er eins og dómínó, einn dómínókubbur fellur þá falla hinir þrjú þúsund. Þessi kraftur verður yfir til enda apríl. Fólk trúir því sem þú segir, svo segðu bara satt, þá færð þú það sem þú vilt Mottó – þú hefur sömu kennitölu og hamingjanFrægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira