Talin hafa fengið reykeitrun þegar eldur kviknaði í Breiðholti Kjartan Kjartansson skrifar 8. október 2017 12:22 Miklar skemmdir urðu á íbúðinni af völdum reyksins. Jóhann K. Jóhannsson
Sjö manns voru í íbúð í Depluhólum í Breiðholti þegar eldur kom þar upp á tólfta tímanum. Töluverður reykur myndaðist og var fólkið flutt til skoðunar á slysadeild. Fjórir eru með ætlaða reykeitrun. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu kom eldurinn upp á jarðhæð tvíbýlishúss við Depluhóla í Breiðholti en tilkynnt var um hann kl. 11:23. Töluverður viðbúnaður var vegna eldsins og fóru slökkviliðsmenn af tveimur stöðvum og þrír sjúkrabílar á staðinn. Eldurinn virðist hafa kviknað í herbergi íbúðarinnar nærri kommóðu. Slökkviliðsmenn af tveimur stöðvum voru fljótir að ráða niðurlögum eldsins en lengri tíma tók að reykræsta íbúðina.Jóhann K. JóhannssonÞegar slökkviliðsmenn komu á staðinn var töluverður eldur í kommóðunni og mikill reykur í íbúðinni. Fólkið hafði allt komist út úr henni en það var flutt á slysadeild til skoðunar og aðhlynningar. Skamman tíma tók að slökkva eldinn en enn er verið að reykræsta íbúðina. Töluverðar skemmdir eru taldar hafa orðið af völdum reyksins. Ekki er vitað um upptök eldsins er mögulegt er talið að kerti eða skreyting hafi komið við sögu.Uppfært 13:40 Fullyrðing um að enginn reykskynjari hafi verið í íbúðinni fjarlægð. Fréttamaður á staðnum hafði þær upplýsingar frá aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliðinu en þær virðast hafa verið á misskilningi byggðar. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins nú var reykskynjari í íbúðinni og var það hann sem gerði íbúunum viðvart um eldinn.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fleiri fréttir Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira