45 stig Westbrook en engin þrenna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. janúar 2017 07:26 Russell Westbrook í leiknum í nótt. Vísir/AP
Russell Westbrook átti enn einn stórleikinn fyrir Oklahoma City Thunder þó svo að hann hafi ekki náð í þrefalda tvennu í sigri liðsins á Dallas Mavericks, 109-98. Hann skoraði 45 stig í leiknum, nýtti sextán af 29 skotum sínum, og var með átta fráköst og þrjár stoðsendingar. Fyrir leikinn hafði hann verið með þrefalda tvennu í þremur leikjum í röð en Westbrook er á góðri leið með að slá met deildarinnar fyrir flestar þrefaldar tvennur á einu tímabili. Annars vakti það helst athygli í leiknum að Enes Kanter brákaði bein í handlegg með því að kýla í stól á hliðarlínunni. Hann verður því frá keppni í nokkurn tíma. Harrison Barnes var með 31 stig fyrir Dallas sem var án nokkurra sterkra leikmanna í nótt. Þetta var þriðji sigur Oklahoma City í röð en liðið er í sjötta sæti vesturdeildarinnar með 28 sigra. Dallas er hins vegar í þriðja neðsta sætinu. Utah vann LA Lakers, 96-88. Gordon Hayward skoraði 24 stig fyrir Utah sem hafði tapað tveimur í röð. Liðið komst á 16-0 sprett í þriðja leikhluta og lét forystuna aldrei af hendi eftir það. Lakers hefur nú tapað átta af síðustu níu leikjum sínum og er í neðsta sæti vesturdeildarinnar með sextán sigra. Utah er í fimmta sætinu með 30 sigra.Úrslit næturinnar: Oklahoma City - Dallas 109-98 Minnesota - Indiana 103-109 Denver - Phoenix 127-120 Utah - LA Lakers 96-88
NBA Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Lukaku leitar sér að nýju liði Fótbolti Fleiri fréttir Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Sjá meira