Situr á 65 milljónum króna á Norðurlandi en veit ekki af því Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. janúar 2017 15:45 Mikil snjókoma hefur verið á Akureyri undanfarið en myndin er tekin í miðbænum í morgun. Ricky Gabriel
Enginn hefur vitjað 64,6 milljóna króna lottóvinnings frá því á gamlársdag. Miðinn var keyptur í Hagkaupum á Furuvöllum á Akureyri þann 28. desember en potturinn var fimmfaldur þennan síðasta laugardag ársins. Miðinn er tíu raða sjálfvalsmiði sem kostaði 1300 krónur. Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, segist hafa áhyggjur enda sé vinningurinn sérstaklega stór. „Það er kominn hálfur mánuður,“ segir Stefán en minnir þó á að miðaeigandinn hafi til 28. desember 2017 til þess að vitja vinningsins. Hins vegar sé ekkert vit í því að vera að slugsa enda aukist hættann á að miðinn týnist eftir því sem lengur er beðið.Sóttu ekki 22 milljóna vinning í fyrra Stefán segir að um 2 prósent vinninga sé ekki vitjað hjá Íslenskri Getspá árlega. Það svari til um 25-30 milljóna í meðalári en stór vinningur, 22 milljónir króna sem enginn vitjaði í fyrra, hækkar þá upphæð. Almennt séu þetta vinningar af stærðargráðunni 400-800 þúsund sem safnist saman, 1-2 milljónir króna á mánuði.Fimm aðilar gerðu tilkall til 22 milljóna króna vinningsins í fyrra en enginn hafði miða því til staðfestingar, sem nauðsynlegt er. „Við viljum að fólkfái vinningana sína og minnum sérstaklega fólk, sem kaupir lottómiða með peningum, á að passa upp á miðana sína,“ segir Stefán. Fresturinn rann út í október í fyrra en miðinn var keyptur ári fyrr. Milljónirnar 22 renna til eigenda Íslenskrar getspár; ÍSÍ (47%), Öryrkjabandalags Íslands (40%) og Ungmennafélags Íslands (13%). Þeir sem ekki vitja risastórra vinninga verða því um leið stórir styrktaraðilar íþrótta og öryrkja á Íslandi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira