Mikil mildi að ekki hafi farið verr 15. janúar 2017 13:28
Mildi þykir að ekki hafi orðið stórbruni þegar eldur kom upp í verslunarhúsnæði að Smiðjuvegi í Kópavogi í nótt. Þrátt fyrir að húsnæðið sé skráð iðnaðarhúsnæði hafa þó nokkrir einstaklingar búsetu í húsnæðinu en þegar eldurinn kom upp voru um tólf til fimmtán einstaklingar í íbúðunum sem allir þurftu að flýja út vegna brunans. Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins auk slökkviliðsmanna á frívakt var kallað út á öðrum tímanum í nótt vegna elds í verslunarhúsnæði við Smiðjuveg 2 í Kópavogi. Eldurinn uppgötvaðist er öryggisvörður átti leið um svæðið og varð eldsins var. Fjölbreytt starfsemi er í húsnæðinu meðal annars húsgagnaverslun og veitingastaðir, apótek og matvöruverslun en auk þess eru íbúðir sem tólf til fimmtán einstaklingar dvöldu í og þurftu þeir að flýja út vegna eldsins. Óttar Karlsson var vettvangsstjóri Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins á vettvangi í nótt. Hann segir að það hafi tekið slökkviliðsmenn nokkurn tíma að átta sig á hvað væri í gangi. „Við teljum að eldurinn hafi verið á millilofti sem að liggur hérna á milli eða hafi byrjað á Bingó og Rúmgott. Slökkviliðsmenn þurftu að brjóta sér leið inn í húsnæði en viðbúnaður vegna brunans var mikill. Ótta segir að eldur hafi verið í húsinu þegar slökkvilið kom á vettvang og mikill reykur sem hafði borist á milli verslunarrýma. „Aðallega reykur, en jú það var eldur líka.“ Óttar sagði slökkviliði ekki hafa haft upplýsingar um að búið væri í húsinu. „Hverju á maður ekki von á í dag? Nei við áttum það svo sem ekki.“ Rauði krossinn kom íbúunum fyrir í bráðabirgðahúsnæði. Eldurinn reyndist að mestu bundinn við milliloft og þak yfir þremur verslunarrýmum og þurfti slökkviliðið að rjúfa þakið til þess að komast að eldinum. Um þrjár klukkustundir tók að ráða niðurlögum eldsins og eru töluverðar skemmdir á húsnæðinu og á innan stokksmunum í verslunum bæði vegna elds og reyks. Slökkviliðið var á vettvangi til klukkan sex í morgun. Eldsupptök eru ókunn og rannsakar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tildrög brunans.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira