Fólkið sem flúði brunann bjó í ósamþykktum íbúðum Jóhann K. Jóhannsson skrifar 15. janúar 2017 19:30
Tólf til fimmtán einstaklingar þurftu að flýja húsnæði sitt eftir að eldur kom upp í verslunar- og iðnaðarhúsnæði við Smiðjuveg í nótt. Töluverður eldur og reykur var í húsinu og ljóst að mun verr hefði getað farið. Rauði krossinn útvegaði fólkinu bráðabirgða húsnæði. Það þykir mildi að ekki hafi orðið meira tjón í nótt en eldurinn virðist hafa komið upp á milli verslunarinnar Rúm gott og Bingó. Töluverður reykur barst inn í verslun Bónus og Apótekarans og sömuleiðis inn í veitingastaðinn Ugly Pizza. Í vesturenda hússins eru ósamþykktar íbúðir þar sem voru 12-15 einstaklingar í nótt og þurftu að flýja út vegna brunans. Tilkynning barst til Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálf tvö í nótt en eldurinn uppgötvaðist eftir að brunaviðvörunarkerfi fór í gang og fór öryggisvörður á vettvang. Tilkynnti hann um eldinn. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang auk þess sem slökkviliðsmenn á frívakt voru kallaðir út. „Við vorum svolítinn tíma að átta okkur á því hvað væri í gangi. Við teljum að eldurinn hafi verið í millilofti sem að liggur hérna á milli. Hann þetta hafi byrjað á milli Bingó og Rúm gott,“ sagði Óttar Karlsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á vettvangi í nótt.Var mikill eldur?Nei, aðallega reykur. En jú það var eldur líka.Í húsnæðinu er ýmiskonar starfsemi blönduð af verslun og iðnaði. Einnig eru átta íbúðir þar sem einstaklingarnir voru og þurftu sumir þeirra að hlaupa fáklæddir út. Áttuð þið von á því að það væri íbúar sem að byggju í þessu húsi?„Hverju á maður ekki von á í dag? Nei við áttum það svo sem ekki,“ sagði Óttar. Rauði krossinn var kallaður út og kom íbúunum fyrir í bráðabirgðahúsnæði. Slökkviliðsmenn rufu gat á þak hússins til þess að hleypa hita út og slökkva eldinn sem reyndist að mestu bundinn við milliloft og þak yfir þremur verslunarrýmum. Slökkvistarf tók um þrjár klukkustundir en miklar skemmdir eru á húsnæðinu og innanstokksmunum vegna elds og reyks. Fréttastofan hitti einn af eigendum hússins á vettvangi í nótt.Hefði getað farið mun verrHvernig verður manni um þegar maður tilkynningu um miðja nótt um að húsið sem maður á er að brenna?„Svona svolítinn hroll. En ég á það nú ekki alveg einn þannig að það eru aðrir sem eiga líka hlut að máli. En manni líður ekkert vel þar sem búið er verið að byggja upp fuðri upp á einni nóttu. Sem betur fer er það ekki þannig í þetta skipti,“ segir Magnús Geirsson, einn eigenda hússins að Smiðjuvegi. Þegar fréttastofan skoðaði aðstæður í dag má sjá að mun verr hefði getað farið hefði eldurinn náð að breiðast út en ljós er að starfsemi nokkurra fyrirtækja kemur til með að raskast vegna brunans. Eldsupptök eru ókunn og rannsakar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tildrög brunans.
Tengdar fréttir Töluverðar skemmdir í eldsvoða á Smiðjuvegi 2 Slökkvistarf á Smiðjuvegi 2 gekk greiðlega en þrátt fyrir það barst reykur inn í fleiri verslanir og því ljóst að um töluverðar skemmdir er að ræða. 15. janúar 2017 09:40 Mikil mildi að ekki hafi farið verr Mildi þykir að ekki hafi orðið stórbruni þegar eldur kom upp í verslunarhúsnæði að Smiðjuvegi í Kópavogi í nótt. 15. janúar 2017 13:28 Eldsvoði á Smiðjuvegi Allt tiltækt lið kallað út. 15. janúar 2017 01:57 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Sjá meira
Töluverðar skemmdir í eldsvoða á Smiðjuvegi 2 Slökkvistarf á Smiðjuvegi 2 gekk greiðlega en þrátt fyrir það barst reykur inn í fleiri verslanir og því ljóst að um töluverðar skemmdir er að ræða. 15. janúar 2017 09:40
Mikil mildi að ekki hafi farið verr Mildi þykir að ekki hafi orðið stórbruni þegar eldur kom upp í verslunarhúsnæði að Smiðjuvegi í Kópavogi í nótt. 15. janúar 2017 13:28