Kennarar taka undir áhyggjur foreldra af skóla án aðgreiningar Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 16. janúar 2017 13:49 Foreldrar barna með námserfiðleika eru ósáttir við almenna grunnskólakerfið. Vísir/AFP
Skóli án aðgreiningar, innistæðulaus mannúð, heitir ritgerð sem Olga Huld Gunnarsdóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf gerði. Ritgerðin fjallar um reynslu og upplifun foreldra barna með námserfiðleika á stuðningi í grunnskólum. Niðurstöðurnar eru í stuttu máli þær að foreldrar upplifi skólastefnuna sem fallega hugmyndafræði sem þó sé innistæðulaus enda vanti fjármagn og aukið aðgengi að fagfólki. Því hafi foreldrar þurft að berjast ítrekað fyrir réttindum barna sinna í almennum grunnskóla. Ólafur Loftsson formaður félags grunnskólakennara segir könnun hafa verið gerða meðal kennara þar sem spurt var hvernig þeim litist á skólastefnuna og svörin hafi verið í svipuðum dúr. „Menn eru fylgjandi stefnunni sem slíkri en þessu fylgir ekki nægur tími eða fjármunir. Það vantar að menn hafi skipulagt í upphafi hvað þeir ætluðu með þessari stefnu, hvernig ætti að framkvæma hana og hvað þeir ætla að fá út úr þessu. Þetta hefur legið fyrir lengi og kemur ekki á óvart," segir Ólafur Loftsson formaður félags grunnskólakennara. Á síðasta ári voru birtar niðurstöður hóps sem gerði greiningu á framkvæmd stefnunnar fyrir hönd menntamálaráðuneytisins. Í stuttu máli rímuðu þær niðurstöður við reynslu foreldra og kennara. Í framhaldi var ákveðið að Evrópumiðstöð um nám án aðgreiningar og sérþarfir gerði úttekt á stefnunni. Þær niðurstöður hafa ekki verið birtar.
Tengdar fréttir Upplifa stefnuna um skóla án aðgreiningar sem innistæðulausa mannúð Olga Huld Gunnarsdóttir gerði mastersritgerð sína í félagsráðgjöf um upplifun foreldra barna með námserfiðleika af því að vera í skóla án aðgreiningar. 15. janúar 2017 09:00 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Sjá meira
Upplifa stefnuna um skóla án aðgreiningar sem innistæðulausa mannúð Olga Huld Gunnarsdóttir gerði mastersritgerð sína í félagsráðgjöf um upplifun foreldra barna með námserfiðleika af því að vera í skóla án aðgreiningar. 15. janúar 2017 09:00