Durant frábær gegn gamla liðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2017 08:53 Kevin Durant og Russell Westbrook mættust í nótt en þeir voru liðsfélagar í mörg ár. Vísir/Getty
Kevin Durant fór mikinn þegar hann mætti sínu gamla liði, Oklahoma City Thunder, í NBA-deildinni í nótt. Durant skoraði 40 stig í öruggum sigri Golden State Warriors, 121-100. Hans gamli liðsfélagi, Russell Westbrook, gaf þó lítið eftir í nótt og náði sinni 21. þreföldu tvennu á tímabilinu. Hann var með 27 stig, fimmtán fráköst og þrettán stoðsendingar. Stephen Curry bætti við 24 stigum og átta stoðsendingum fyrir Golden State og Klay Thompson var með fjórtán stig. Durant hefur nú skorað samtals 79 stig í tveimur leikjum gegn Oklahoma City á tímabilinu og nýtt alls 28 af 40 skotum í leikjunum tveimur. Philadelphia vann Toronto, 94-89, og þar með sinn sjöunda leik af síðustu níu. Joel Embiid heldur áfram að gera það gott en hann var með 26 stig í leiknum. Eftir þrjú hörmuleg tímabil horfir til betri vegar fyrir Philadelphia með Embiid fremstan í flokki. Liðið hefur unnið fjórtán leiki en tapað 26 í vetur, sem er þó mun betra sigurhlutfall en undanfarin tímabil á undan. Houston vann Milwaukee, 111-92. James Harden var með 28 stig, átta stoðsendingar og sex fráköst. Gríska fríkið, Giannis Antetokounmpo var með 32 stig, ellefu fráköst, sex stoðsendingar og þrjú varin skot fyrir Milwaukee.Úrslit næturinnar: Philadelphia - Toronto 94-89 Washington - Memphis 104-101 Charlotte - Portland 107-85 Boston - NY Knicks 106-117 New Orleans - Orlando 118-98 Houston - Milwaukee 111-92 Detroit - Atlanta 118-95 Golden State - Oklahoma City 121-100 Sacramento - Indiana 100-106
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Sjá meira