Sárvantar líffæri ef anna á eftirspurn Svavar Hávarðsson skrifar 2. janúar 2017 06:00 200 til 250 opnar hjartaaðgerðir eru framkvæmdar árlega á Íslandi. Mynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Nú hafa um 25 þúsund manns skráð sig sem líffæragjafa eftir að líffæragjafavefur Embættis landlæknis var opnaður í lok október 2014. Ef vel ætti að vera þyrftu að lágmarki 50 þúsund Íslendingar að vera á skrá yfir líffæragjafa. Óskastaðan er þó að 100 þúsund nöfn væri þar að finna, að mati Tómasar Guðbjartssonar, prófessors og hjartaskurðlæknis á Landspítalanum. Eftirspurn eftir líffæraígræðslum hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin. Á hverju ári þarfnast um 25 til 30 sjúklingar hér á landi líffæraígræðslu, en flestir bíða eftir nýra. Ekki er unnt að nýta líffæri nema í litlum hluta dauðsfalla en hver líffæragjafi getur bjargað lífi nokkurra einstaklinga. Mikill skortur er á líffærum til ígræðslu um allan heim og því er áríðandi að sem flestir séu fúsir til að gefa líffæri, kemur fram í upplýsingum frá landlækni. Á tveggja og hálfs árs tímabili skráðu 7.000 manns sig árið 2014, 14.000 í fyrra og 4.000 einstaklingar á árinu sem er að líða.Tómas GuðbjartssonTómas segir að árangur eftir hjartaígræðslu hafi batnað verulega á síðustu árum og í dag má gera ráð fyrir að 90% hjartaþega séu á lífi eftir eitt ár og 70% eftir 5 ár. „Sömu sögu er að segja af ígræðslum á öðrum líffærum eins og nýrum, lungum, lifur og brisi. Árangurinn fer batnandi jafnvel þótt verið sé að græða líffæri í veikari sjúklinga. Stóra vandamálið er samt sem áður að framboð á líffærum er ekki nægilegt til að anna eftirspurn,“ segir Tómas. Flestar ígræðslur á Íslendingum eru ígræðsla á nýra úr lifandi gjafa og hafa hátt í 100 slíkar aðgerðir verið gerðar á Landspítala frá 2003, eða í kringum 10 talsins síðustu ár. Þessar ígræðslur hafa gengið afar vel hér á landi en nýrnaígræðslur úr látnum einstaklingum eru hins vegar enn framkvæmdar í Svíþjóð, segir Tómas. Aðrar líffæraígræðslur úr látnum einstaklingum í Íslendinga fara einnig fram í Svíþjóð – aðallega á Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg. Líffæri sem gefin eru hérlendis eru því flutt þangað og eru hluti af líffærabanka norrænu ígræðslusamtakanna Scandiatransplant sem Ísland á aðild að. Einnig eru Norðurlöndin í samstarfi við önnur Evrópulönd en það sem takmarkar líffæragjafir og ígræðslur milli fjarlægra landa, sérstaklega á hjörtum, er að flutningstími má ekki vera of langur eigi ígrædda líffærið að geta starfað eðlilega í þeganum. Þegar látnir Íslendingar gefa líffæri koma hingað til lands líffæraígræðsluteymi með einkaþotum sem sækja líffærin, stundum frá fleiri en einu sjúkrahúsi, enda líffærin grædd í þá einstaklinga sem mest þurfa á ígræðslu að halda og þar sem uppfyllt eru skilyrði um réttan blóðflokk, þyngd og stærð. „Þetta samstarf hefur gengið afar vel og veitir okkur aðgang að líffærum frá öðrum Norðurlöndum og þeim löndum í norðanverðri Evrópu sem Svíarnir eru í samstarfi við. Það er því afar brýnt að við Íslendingar leggjum til norræna líffærabankans með því að gefa eins mörg líffæri og hægt er og bjarga þannig mannslífum. Að það séu 25.000 manns á líffæragjafavef landlæknisembættisins er vissulega góð byrjun en við getum gert mun betur. Sérstaklega getum við litið til Spánverja en þeir hafa náð lengst af öllum þjóðum og státa af hæsta hlutfalli líffæragjafa í heiminum,“ segir Tómas. Tómas er einn höfunda Kransæðabókarinnar sem kom út fyrir þessi jól. Hann segir að alvarlegur kransæðasjúkdómur með hjartabilun sé næstalgengasta ástæða hjartaígræðslu á Vesturlöndum og er meðalaldur hjartaþega um 54 ár, en 80% eru karlar. En hillir undir að fleiri svo flóknar aðgerðir verði gerðar hér á landi í nánustu framtíð? „Við erum fjórir íslenskir hjartaskurðlæknar sem höfum starfað við hjartaígræðslur í Svíþjóð og Bandaríkjunum, þar af tveir sem nú störfum á Íslandi. Auk þess hefur fjöldi íslenskra svæfingar- og hjartalækna reynslu af meðferð sjúklinga sem fá ígrætt hjarta. Það er hins vegar ekki raunhæft að gera þessar aðgerðir hér á landi, aðallega vegna þess hversu fáar aðgerðirnar eru en einnig vegna þess hversu langan tíma tekur að fljúga hingað með líffærin. Sem betur fer höfum við átt frábært samstarf við Sahlgrenska-sjúkrahúsið og ekki spillir fyrir að þar eru margir íslenskir læknar við störf,“ segir Tómas. Hér á landi hafa sautján einstaklingar fengið ígrætt hjarta frá 1988, þar af tveir vegna afleiðinga kransæðasjúkdóms. „Sem betur fer eru þetta ekki margir sjúklingar sem er vísbending um að meðferð kransæðasjúkdóms hér á landi sé góð. Árangur þeirra Íslendinga sem fengið hafa ígrætt hjarta er mjög góður, en allir sjúklingarnir sautján hafa lifað lengi eftir aðgerð og í dag eru fjórtán þeirra á lífi, og flestir við góða heilsu.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Fleiri fréttir „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Sjá meira