Furðar sig á vinnubrögðum Icewear: Tóku upp auglýsingu á landi í einkaeigu í leyfisleysi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. janúar 2017 18:00 Myndskeiðið var tekið upp á jörð Guðnýjar, með kvígum í hennar eigu í bakgrunni. Guðný furðar sig á því að ekki hafi verið óskað eftir leyfi fyrir auglýsingunni. icewear
Guðný Jakobsdóttir, bóndi á Syðri-Knarrartungu á Snæfellsnesi, furðar sig á vinnubrögðum fyrirtækisins Icewear sem á dögunum tók upp auglýsingu á landi í hennar eigu, án þess að hafa óskað eftir leyfi fyrir því. Guðný gaf sig á tal við hópinn sem var að mynda en fékk ekki upplýsingar um að myndatakan væri í auglýsingaskyni, þrátt fyrir að hafa upplýst hópinn um að hún væri eigandi jarðarinnar. „Ég kom þarna að og kona úr hópnum kom til mín sem sagði mér að það væri smá myndataka þarna í gangi. Ég sagði henni að ég ætti þessar kvígur sem fólkið var að mynda og konan varð þá svolítið skrítin og sagðist bara hafa rekið augun í gripina og langað til að taka mynd,“ segir Guðný, sem segist ekkert hafa spáð frekar í þessari myndatöku. Guðný segir þó að sér hafi brugðið nokkuð þegar henni var bent á nýjustu auglýsingu fyrirtækisins, sem er myndskeið af umræddum kvígum á hennar jörð. „Þetta snýst fyrst og fremst um ákveðin prinsipp, að bera virðingu fyrir einkaeign. Kvígunum hefði til dæmis getað brugðið við þetta, þannig að það má alveg setja spurningarmerki við svona vinnubrögð,“ segir hún. Guðmundur Halldór Björnsson, markaðsstjóri Icewear, segir þessa verkferla almennt ekki viðgangast hjá fyrirtækinu, ávallt eigi að biðja um leyfi fyrir slíkum myndatökum. Hann segist ekki hafa náð á hópinn sem hélt utan um verkefnið og getur því ekki svarað til um hvað fór úrskeiðis þarna. Guðmundur hefur hins vegar haft samband við Guðnýju og beðist afsökunar, ásamt því sem henni hafi verið boðið gjafabréf hjá versluninni. Samkvæmt upplýsingum frá Persónuvernd falla þessar myndbirtingar líklega ekki undir persónuverndarlög. Myndbirtingar á almannafæri séu almennt heimilar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira