Batt fyrrum sambýliskonu sína niður og ógnaði henni með hamri sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 3. janúar 2017 14:35 Maðurinn sagðist hafa verið að reyna að hemja konuna svo hún „yrði til friðs". Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðasta mánuði karlmann til átján mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa veist að fyrrum sambýliskonu sinni á heimili hennar og svipt hana frelsi hennar árið 2015. Samverkamaður mannsins var dæmdur í tólf mánaða fangelsi en honum var gefið að sök að hafa svipt karlmann, sem var gestkomandi hjá konunni, frelsi hans og ógnað honum. Maðurinn var sakaður um að hafa svipt fyrrum sambýliskonu sinni frelsi hennar. Hann var sagður hafa veist að henni, hent henni á sófa og haldið henni fastri með líkamsþunga sínum. Síðan hafi hann, ásamt hinum ákærða, bundið konuna á höndum og fótum og ógnað henni með hamri, slegið hana ítrekað í síðuna, tekið hana kverkataki og þrengt að þannig að hún missti meðvitund. Hinn maðurinn, sem fékk tólf mánaða fangelsisdóm, var sagður hafa haldið manninum, sem var gestkomandi, afsíðis með því að ógna honum með hamri og hóta honum ofbeldi ef hann skipti sér af. Mennirnir tveir tóku í kjölfarið tölvu, tölvuskjá og verkfæratösku ófrjálsri hendi af heimili konunnar.Neitaði sök en sagðist bara hafa viljað hemja konuna Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa farið heim til sambýliskonu sinnar fyrrverandi til þess að sækja eigur sínar, en að hún hefði áður brotist inn til hans og stolið frá honum nánast aleigunni. Fyrir dómi sagði hann konuna hafa verið ósátta við heimsóknina og brugðist illa við þegar hann hafi farið að tína saman hluti. Kvaðst hann þá hafa ýtt henni í sófann í stofunni en hvorki lagt á hana hendur né bundið hana. „Hafi honum, sem væri 120 kg., verið í lófa lagið að skaða brotaþola ef hann hefði viljað. Þá hafi hann beitt röddinni valdsmannslega og notað ljót orð. Hafi hann viljað hemja hana og koma í veg fyrir að skipta sér af því sem hann væri að gera,“ segir í dómnum.Þekktust ekkert fyrir Hinn maðurinn sagðist ekkert hafa þekkt meðákærða fyrir, hann hafi einungis boðist til að koma með til konunnar því hann þekkti hana vel. Hann sagðist lítið muna eftir kvöldinu, og sagðist hafa verið á þannig stað í íbúðinni að hann hafi ekki séð fullkomlega það sem fram fór. Honum hafi ekki „staðið alveg á sama“ að vera þarna, fundist það óþægilegt og því ekki lagt sig fram við að fylgjast með því sem fram fór. Mönnunum tveimur var gert að greiða konunni 850 þúsund krónur óskipt með vöxtum. Dóminn má lesa í heild hér.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira