Grímumaðurinn grunaður um skelfilega árás í Kópavogi gengur enn laus Birgir Olgeirsson skrifar 6. janúar 2017 11:12 Lögreglan leitar enn mannsins sem skildi grímuna og hnífinn eftir í stigagangi þar sem Greiningarstöðin er til húsa. Vísir/Getty/GVA
Rannsókn lögreglu á hnífstunguárásina í húsakynnum Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins við Digranesveg í Kópavogi mánudaginn 19. desember síðastliðinn hefur engu skilað. Þar var kona sem starfa hjá Greiningarstöðinni stungin af manni sem huldi andlit sitt með svokallaðri „Scream“-grímu, sem var gerð ódauðleg í samnefndum hryllingsmyndum. Lögreglan leitar enn mannsins sem skildi grímuna og hnífinn eftir í stigagangi þar sem Greiningarstöðin er til húsa. Unnið er að því að greina lífsýni á grímunni og hnífnum en þeirri greiningu er ekki lokið að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu. Hann vildi ekki staðfesta hvort einhver fingraför hefðu fundist á hnífnum eða grímunni. Hann tók jafnframt fram að þó svo að slíkt myndi finnast þá þarf hins vegar að finna samsvörum í grunni um lífefni og fingraför. Þessi greiningarvinna tekur langan tíma og ekki ljóst hvort hægt sé að para lífsýni sem mögulega finnast á hnífnum eða grímunni við það sem fyrir er í gagnagrunnum. Einn var handtekinn samdægurs og árásin átti sér stað en hann var látinn laus að lokinni yfirheyrslu. Lögreglan hefur engan nálgast vegna málsins síðan þá að sögn Gríms. Konan og maðurinn áttu engin samskipti og engar öryggismyndavélar voru á svæðinu, og því hefur reynst erfitt að hafa uppi á manninum. Konan slasaðist ekki alvarlega í árásinni en hlaut skurð á handlegg. Grímur segir hana skiljanlega skelkaða eftir árásina en vildi ekki fara út í hvort hún nyti einhverskonar verndar af hálfu lögreglu.
Tengdar fréttir Árásarmaðurinn í Kópavogi gengur enn laus Rannsókn málsins miðar hægt. 23. desember 2016 10:07 Árásarmaðurinn í Kópavogi var með „scream“ grímu Skildi grímuna og hnífinn eftir. 21. desember 2016 13:07 Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira
Árásarmaðurinn í Kópavogi var með „scream“ grímu Skildi grímuna og hnífinn eftir. 21. desember 2016 13:07