Borgarstjórinn í Calais bannar dreifingu matvæla til flóttamanna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. mars 2017 11:12 Flóttamenn í Calais. vísir/epa
Natacha Bouchart, borgarstjórinn í frönsku borginni Calais, hefur bannað dreifingu matvæla til flóttamanna. Þetta gerir hún til að koma í veg fyrir að nýjar flóttamannabúðir rísi í borginni en þrír mánuðir eru síðan stórar flóttamannabúðir voru jafnaðar við jörðu í Calais. Að því er fram kemur í umfjöllun á vef Guardian streyma nú hundruð flóttamanna aftur til borgarinnar en hún stendur við Ermarsund og freistar fólk þess gjarnan að komast í Ermarsundsgöngin og yfir til Bretlands. Bouchart sagði í gær að hún myndi innleiða stefnu til að koma í veg fyrir að mat verði dreift til flóttafólks en borgaryfirvöld hafa nú þegar bannað hjálparsamtökum að setja upp og opna sturtur fyrir ungmenni á flótta sem komið hafa til borgarinnar. Hjálparsamtök sem hafa dreift matvælum til flóttamanna segjast hafa þurft að gera það í leyni þar sem lögreglan fylgist vel með en þau ætla ekki að hlýta banninu og hafa leitað til lögfræðinga. Samkvæmt stefnu borgaryfirvalda er dreifing matvæla til flóttafólks ógn við frið og öryggi á því svæði þar sem dreifingin hefur farið fram, það er þar sem upprunalegu flóttamannabúðirnar voru. Allar samkomur voru því bannaðar á svæðinu.Ítarlega umfjöllun Guardian um ástandið í Calais má lesa hér.
Flóttamenn Tengdar fréttir Börnin snúa aftur til Calais 20. febrúar 2017 07:00 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira