Tobias stefnir á fimmtán mörk, gullskóinn og Íslandsmeistaratitilinn með KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. apríl 2017 20:30 Tobias Thomsen ætlar sér stóra hluti. vísir
Danski framherjinn Tobias Thomsen sem hóf ferilinn hjá KR með marki í 4-1 sigri liðsins á Þór í átta liða úrslitum Lengjubikarsins í gærkvöldi stefnir í hæstu hæðir með vesturbæjarliðinu í sumar. Tobias sér fram á að raða inn mörkum fyrir KR-inga, hirða gullskóinn og verða Íslandsmeistari með liðinu í haust en hann kom til KR frá AB í dönsku 1. deildinni. „Það var ljúft að byrja svona vel. Sem framherji vill maður alltaf skora en það mikilvæga er að kynnast liðsfélögunum. Það er samt gott að hafa unnið leikinn,“ segir Thomsen í viðtali við bold.dk.Danski framherjinn var fastamaður í byrjunarliði AB og var búinn að skora sex mörk í 20 leikjum fyrir liðið sem er á leið niður í 2. deildina. „Ég er aðeins að fara út úr þægindarammanum með því að koma hingað en ég þarf á þessu að halda. Mér leið alveg vel í AB en við vorum bara að tapa of mikið af leikjum. Þegar þetta tækifæri bauðst hikaði ég ekki,“ segir Thomsen sem ætlar sér stóra hluti í sumar. „KR er frábært félag og liðið nógu gott til að verða Íslandsmeistari. Ég sjálfur hef ekki sett mér nein sérstök markmið en það væri fínt að byrja á því að skora fimmtán mörk. Auðvitað vil ég svo verða markahæstur í deildinni,“ segir Tobias Thomsen.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum ÍR á toppinn en fjögur rauð spjöld og allt vitlaust í lokin Allison með fyrsta markið á nýjum Hásteinsvelli Mæta Víkingum á nýlögðu gervigrasi í Eyjum Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Sjáðu glæsimark Óla Vals og öll hin í Mosfellsbæ Halldór: „Þetta er kannski lægsta orku-level sem ég hef séð hjá liðinu í sumar“ Njarðvíkingar flugu á toppinn með stórsigri í Grindavík Uppgjörið: Afturelding-Breiðablik 2-2 | Meisturum Blika fataðist flugið Þróttarar breyttu tapi í sigur með tveimur mörkum í lokin Fær tveggja leikja bann fyrir hártogið Varð fullorðinn úti „Reisn“ yfir ákvörðun Jóns Daða sem gaf stórliðunum langt nef „Eitt það versta sem ég hef séð síðustu ár“ „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Sjá meira