Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur áfrýjað bráðabirgða banni á tilskipun Bandaríkjaforseta um ferðabann ríkisborgara sjö landa til Bandaríkjanna. Er þar með reynt að snúa úrskurði alríkisdómara sem lagði á bráðabirgða bannið.
Um 60 þúsund vegabréfsáritanir hafa verið afturkallaðar eftir að Donald Trump undirritaði forsetatilskipun um ferðabann til Bandaríkjanna á þá sem eru ríkisborgarar í Írak, Sýrlandi, Íran, Libýu, Sómalíu, Súdan og Jemen.
Ríkissaksóknarar í Washington-ríki voru þeir sem létu reyna á ferðabann Trumps fyrir dómstólum. Þeir héldu því fram að bannið færi gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna því það meinaði fólki með lögmætri vegabréfsáritun að ferðast til Bandaríkjanna án dóms og laga. Þá sögðu þeir bannið brjóta gegn trúfrelsi einstaklinga því ferðabanninu væri beint gegn múslimum.
Það var alríkisdómari í Seattle-borg, James Robart, sem lagði bráðabirgða bann á tilskipun Trump en forsetinn sagði þennan úrskurð dómarans fáránlegan og hét því að hnekkja honum. Stjórn Trump vill meina að bannið sé fullkomlega löglegt þar sem það miðast að því að vernda Bandaríkin.
Trump hefur úthúðað alríkisdómaranum James Robart, sem var settur alríkisdómari árið 2004 eftir tilnefningu frá George W. Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta.
„Skoðun þessa svokallaðs dómara, sem tekur löggæslu af okkar landi, er fáránleg og verður snúið,“ skrifaði Trump á Twitter.
Trump áfrýjar bráðabirgðabanni á tilskipun hans

Tengdar fréttir

Trump æfur eftir lögbann alríkisdómara á innflytjendabann
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna er æfur vegna ákvörðunar alríkisdómara þar í landi um að setja lögbann á umdeilt innflytjendabann ríkisstjórnar Trump.

Telur tilskipun Trumps ekki byggja á staðreyndum
James Robart, bandaríski alríkisdómarinn sem sett hefur lögbann á tilskipun Trumps um ferðabann íbúa frá sjö Mið-Austurlöndum og Afríku, telur að tilskipunin byggi ekki á neinum staðreyndarlegum grunni.

Sýnir Trump afhöfða Frelsisstyttuna
Forsíðumynd þýska vikublaðsins Der Spiegel veldur usla í heimalandi sínum sem og erlendis en hún sýnir mynd af Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, afhöfða frelsisstyttuna.