Eiginkona og stjúpsonur KKK-leiðtogans ákærð fyrir morðið atli ísleifsson skrifar 14. febrúar 2017 08:36 Malissa Ancona og Paul Jinkerson jr. lögregla í Bandaríkjunum
Eiginkona og stjúpsonur KKK-leiðtogans Frank Ancona, sem fannst látinn um helgina, hafa verið ákærð fyrir morðið.Lík Ancona fannst á laugardag á árbakka í Missouri af fjölskyldu sem var á veiðum. Ancona var leiðtogi (e. imperial wizard) í samtökunum Traditionalist Knights of the Ku Klux Klan, sem heldur fram að hvíta kynstofninn hafi yfirburði yfir aðra. Eiginkonu hans Malissa Ancona, sem lýsti eftir eiginmanni sínum á Facebook þegar hans var saknað, og stjúpsonur Ancona, Paul Jinkerson Jr, var birt ákæra í gær. Í frétt BBC segir að þau séu sökuð um að hafa myrt Ancona, yfirhylmingu og að hafa skilið lík eftir á víðavangi.Lögregla sakar mæðginin um að hafa skotið Ancona þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu á heimili sínu í Leadwood, um 110 kílómetrum suður af St. Louis í Missouri-ríki, síðastliðinn fimmtudag. Talið er að mæðginin hafi svo ekið líkinu um 30 kílómetra leið og komið því fyrir í á nærri bænum Belgrade. Brunaleifar hafa fundist nærri bíl Ancona sem fannst um 50 kílómetrum frá þeim stað þar sem líkið fannst. Vinnuveitandi Ancona lýsti fyrst eftir honum, eftir að hann skilaði sér ekki til vinnu. Áður en líkið fannst greindi Malissa lögreglu frá því að eiginmaðurinn væri við vinnu utan ríkisins og að hún hugðist sækja um skilnað. Samtökin KKK eru þekkt fyrir hatur sitt á þeldökkum, en einnig fyrir gyðinga- og hommahatur sem og hatur á ýmsum öðrum minnihlutahópum.
Tengdar fréttir KKK-leiðtogi fannst látinn Frank Ancona hafði verið saknað síðan á föstudag. 12. febrúar 2017 22:44 Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira