Bakarar handteknir í Venesúela út af ólöglegum súkkulaðikökum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. mars 2017 11:19 Bakararnir höfðu meðal annars bakað brownies með útrunnu hveiti. vísir/getty
Fjórir bakarar voru handteknir í Venesúela á dögunum út af ólöglegum súkkulaðikökum (e. brownies) sem þeir bökuðu en ríkisstjórn Nicolás Maduro, forseta landsins, hefur hótað því að taka yfir bakaríin í landinu í því sem kallað hefur verið „brauðstríð.“ Maduro hefur sent eftirlitsmenn og hermenn inn í meira en 700 bakarí víðs vegar um landið til þar sem reglur í landinu kveða á um það að 90 prósent af öllu hveiti skal notað í brauð en ekki kökur og annað sætmeti. Er þetta liður í aðgerðum stjórnvalda að sporna við vöruskorti og löngum röðum sem myndast hafa þar sem almenningur bíður eftir því að geta keypt nauðsynjavörur. Ríkisstjórn Maduro heldur því fram að fyrirtæki sem séu andsnúin ríkjandi valdhöfum vinni gegn efnahag landsins með því að hamstra vörur og hækka vöruverð. Gagnrýnendur ríkisstjórnarinnar segja hins vegar að ríkisstjórninni hafi mistekist hrapallega við efnahagsstjórn landsins og bakarar kenna til að mynda stjórnvöldum um mikinn skort á hveiti sem er viðvarandi í Venesúela. Tveir bakarar voru sem sagt handteknir í vikunni fyrir að nota of mikið hveiti í sætmeti á borð við frönsk horn og annað og aðrir tveir voru svo handteknir fyrir að búa til súkkulaðikökur með hveiti sem var reyndar útrunnið. „Þeir sem standa fyrir brauðstríðinu munu borga og það þýðir ekki fyrir þá að segja að þetta séu pólitískar ofsóknir,“ sagði Maduro í vikunni áður en bakararnir höfðu verið handteknir.
Tengdar fréttir Venesúela lokar landamærum til að koma í veg fyrir smygl Landamærunum lokað í þrjá sólarhringa. 13. desember 2016 08:07 Venesúelabúar gefa börn vegna ástandsins Gríðarleg ringulreið ríkir nú í Venesúela vegna seðlaskorts en ákveðið hefur verið að taka algengasta seðil landsins úr umferð. Verðbólga hefur aukist um 500 prósent á undanförnum misserum og eru fjölskyldur farnar að gefa börn. 17. desember 2016 07:00 Íbúar Venesúela flokki rusl fyrir sársvanga Efnahagsástandið í Venesúela hefur verið ömurlegt undanfarna mánuði og er skortur á lyfjum og mat í landinu. 6. mars 2017 07:00 Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira
Venesúela lokar landamærum til að koma í veg fyrir smygl Landamærunum lokað í þrjá sólarhringa. 13. desember 2016 08:07
Venesúelabúar gefa börn vegna ástandsins Gríðarleg ringulreið ríkir nú í Venesúela vegna seðlaskorts en ákveðið hefur verið að taka algengasta seðil landsins úr umferð. Verðbólga hefur aukist um 500 prósent á undanförnum misserum og eru fjölskyldur farnar að gefa börn. 17. desember 2016 07:00
Íbúar Venesúela flokki rusl fyrir sársvanga Efnahagsástandið í Venesúela hefur verið ömurlegt undanfarna mánuði og er skortur á lyfjum og mat í landinu. 6. mars 2017 07:00