Minningin er brennd inn í barnssálina Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. nóvember 2017 13:15 Feðgarnir Eiríkur og Þórarinn stilltu sér upp í snjónum í höfuðborginni í gær. Vísir/Vilhelm
Myndin er átakanleg og áfallateymi fjórðungssjúkrahússins verður viðstatt frumsýninguna, enda mæta þar þeir sem koma fram í henni, fólk sem lenti í flóðinu eða missti ættmenni þar,“ segir Þórarinn Hávarðsson sem ásamt syni sínum, Eiríki Þór Hafdal, hefur gert mynd um snjóflóðin í Neskaupstað í desember 1974. Þar fórust tólf manns og atvinnulífið lamaðist. Myndin nefnist Háski, fjöllin rumska og verður frumsýnd í Egilsbúð í Neskaupstað á morgun klukkan 17. Þórarinn tók viðtölin og Eiríkur Þór var tökumaður og klippari. Hvernig gekk efnisöflun? „Ég hefði ekki trúað því að óreyndu hversu auðveldlega gekk að fá fólk til rifja þessa atburði upp, þrátt fyrir að það tæki gífurlega á því sumir bara grétu eins og börn fyrir framan vélina. Samt eru liðin 43 ár.“ Var myndefni til? „RÚV átti talsvert af fréttamyndum sem Ómar Ragnarsson og fleiri tóku dagana eftir flóðin og sýndu afleiðingarnar. Við byrjum á að segja frá og sýna Neskaupstað eins og hann var fyrir flóð, síðan fjöllum við um snjóflóðið og björgunaraðgerðirnar og svo tökum við eftirmála um uppbyggingu snjóflóðavarnargarðanna sem nær alveg til dagsins í dag.“ Þeir feðgar tóku upp 18 klukkutíma af viðtölum en myndin er 2,08 tímar, að sögn Þórarins. „Fyrsta útgáfa okkar af myndinni, þegar við vorum orðnir ánægðir, var upp á fimm klukkutíma, svo þurftum við að klippa hana niður í tvo, það var erfitt. Á móti kemur að við munum vinna þrjá til fjóra þætti fyrir sjónvarpið úr efninu, þeir verða sennilega á dagskrá að ári liðnu.“ Þórarinn átti heima á Norðfirði sem barn. „Ég var tólf ára gutti þegar flóðin féllu og man vel eftir þeim, minningin um þau er eins og brennd inn í barnssálina,“ segir hann. „Tveir í mínum bekk misstu þar foreldri. Þetta var erfiður tími, vægast sagt.“
Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira