Ari Eldjárn nýr stjórnandi Sinfó Jóhann K. Jóhannsson skrifar 7. febrúar 2017 19:47
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Ari Eldjárn, skemmtikraftur, leiða saman hesta sína í nýju verki sem verður frumsýnt í Hörpu á fimmtudag. Í dag tóku grunnskólanemar forskot á sæluna þegar þeim var boðið að sjá sýninguna en þar fara hljómsveitin og Ari vel út fyrir þægindarammann en ná þó að flétta saman húmor og nokkrum af meistaraverkum tónlistarinnar svo úr verður sannkölluð eðalskemmtun. Á hverju ári býður Sinfóníuhljómsveit Íslands tæplega fimmtán þúsund nemendum leik,- grunn- og framhaldsskóla á tónleika þar sem starfsemi sinfóníunnar er kynnt. Í dag mættu um þúsund nemendur til þess að fylgjast með sýningunni. Nemendur úr nokkrum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu fengu frí í tímum í morgun og voru mætt í Hörpuna um klukkan hálf ellefu, en Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur veg og vanda að því að bjóða grunnskólanemunum á sýninguna í dag og á morgun. „Við erum með uppistand núna í vikunni með Ara Eldjárn og Sinfó. Við byrjum á að halda krakkatónleika. Það koma þrjú til fjögur þúsund krakkar hingað í hús núna í vikunni og svo á fimmtudag, föstudag og laugardag erum við með almenna tónleika,“ segir Margrét Ragnarsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Í nýju verki Sinfóníunar og Ara Eldjárn fléttast húmor og meistaraverk tónlistarinnar saman svo að úr verður sannkölluð eðalskemmtun. „Þetta er svolítið öðruvísi en ég er vanur að gera. Það er mjög skemmtilegt að vinna með Ara, ég veit aldrei hvað hann ætlar að gera [...] Ég held hann viti ekki sjálfur hvað hann ætlar að gera. Hann er svo spontant,“ segir Bernharður Wilkinsson, stjórnandi Sinfoníuhljómsveitar Íslands. Fréttastofa Stöðvar 2 leit við á æfingu í morgun, en innslagið má sjá hér fyrir neðan.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira