Trump yfirgaf herbergið án þess að skrifa undir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. apríl 2017 20:49 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skrifaði ekki undir forsetatilskipanir á sérstakri samkomu sem hann hafði sjálfur boðað til, síðastliðinn föstudag í þeim tilgangi. Hann mætti en yfirgaf síðan herbergið. Myndband af atvikinu hefur hlotið mikla athygli. CNN greinir frá. Forsetinn hefur allt frá því að hann tók við völdum í janúar síðastliðnum ítrekað boðað til slíkra viðburða, þar sem hann hefur undirritað forsetatilskipanir sem ávallt hafa hlotið mikla athygli. Á föstudaginn hélt forsetinn stutta ræðu um tilskipanirnar en þær eiga að auðvelda bandarískum stjórnvöldum að bregðast við lögbrotum fyrirtækja sem stunda viðskipti við útlönd. Að lokinni ræðu sinni var forsetinn spurður út í fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa sinn Michael Flynn, sem sóst hefur eftir friðhelgi, gegn því að veita vitnisburð vegna tengsla ríkisstjórnar Trump við Rússa, en þær spurningar virti forsetinn að vettugi, áður en hann yfirgaf herbergið. Fast á hæla hans kom Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna og hafði hann meðferðis möppurnar tvær með tilskipununum. Hann undirritaði svo tilskipanirnar fyrir luktum dyrum, í öðru herbergi í Hvíta húsinu. Ekki er ljóst hvað nákvæmlega olli atvikinu en hægt er að sjá myndband af því hér fyrir neðan.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Fleiri fréttir Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Sjá meira