Fiskeldi megi ekki vaxa of hratt Kristinn Ingi Jónsson skrifar 1. júlí 2017 06:00 Í fyrra var rúmlega fimmtán þúsund tonnum af eldisfiski slátrað hér á landi. Það er metframleiðsla í fiskeldi. Vöxturinn var yfir áttatíu prósent á milli ára. Gert er ráð fyrir miklum vexti í greininni á næstu árum. vísir/pjetur
Fiskeldi hefur reynst mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf í dreifbýli í nágrannaríkjum Íslands og er ekki ósennilegt að áhrifin gætu orðið þau sömu hér. Hins vegar verða stjórnvöld og fiskeldisfyrirtæki að stíga varlega til jarðar. Ekki er ráðlegt að ana að neinu. Þetta er mat Daða Más Kristóferssonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands. Daði Már bendir í samtali við blaðið á að fiskeldi hafi verið stærsti vaxtarbroddurinn í atvinnulífinu á landsbyggðinni í Noregi og haft afar jákvæð áhrif á byggðaþróun. Ástæðan sé að hluta til sú að atvinnugreinin sé á margan hátt stöðugri en til dæmis fiskveiðar. Hún byggi einnig á annars konar þekkingu, skapi annars konar störf sem eru oft eftirsóknarverð og leiði af sér umfangsmikla afleidda starfsemi.Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.vísir/gvaSem dæmi um áhrif atvinnugreinarinnar í Noregi má benda á að samkvæmt mati Norðmanna skapar hvert ársverk í fiskeldi um 2,7 milljónir norskra króna sem jafngildir um 33 milljónum íslenskra króna. Fjöldi ársverka í greininni, þ.e. eldi, vinnslu og sölu, var um 9.500 árið 2014 en afleidd ársverk reyndust rúmlega 19 þúsund. Allt í allt voru því ársverkin um 28.500. „Þetta er lyftistöng fyrir þessi samfélög. Og það er í sjálfu sér ástæða til að vera jákvæður gagnvart fiskeldi sem grundvallaratvinnugrein á Íslandi eins og annars staðar.“ Hins vegar þurfi fiskeldismenn og stjórnvöld að stíga varlega til jarðar. Ýmis þjóðhagslegur kostnaður fylgi atvinnugreininni. „Umhverfisáhrifin af fiskeldi eru umtalsverð. Þau eru mjög vandlega staðfest í nágrannalöndunum og það er einnig vandlega staðfest að þeir sem hafa slakað verulega á kröfum í umhverfismálum hafa iðulega séð eftir því til lengri tíma litið. Við ættum að láta það verða lexíu fyrir okkur.“ Hann bendir einnig á að sérfræðingar í fiskeldi hafi slegið því föstu að sjávarhiti við strendur Íslands sé á mörkum þess að vera nægilega hár, sérstaklega yfir vetrartímann. Það sé líklegt til þess að valda vandræðum sem taka þurfi tillit til, svo sem verulegum áföllum eða hærri framleiðslukostnaði vegna þess að afföll yfir veturinn verði meiri hér á landi en í samkeppnisríkjunum. „Þá þurfa menn að hafa í huga að fiskeldi krefst mikillar fjárbindingar og framlegðin er yfirleitt frekar lítil. Hún er mjög mikil núna, og margir eru að græða vel, en vanalega hefur verð á laxi fylgt framleiðslukostnaði. Og Ísland á erfitt með að keppa á slíkum mörkuðum vegna þess að við búum að jafnaði við hærri fjármagnskostnað og óstöðugri gjaldmiðil en samkeppnislöndin. Þetta eru allt áhættuþættir sem þarf að huga að enda geta þeir orðið uppbyggingunni til trafala,“ segir hann. Daði Már segir að uppbyggingin í fiskeldi hafi tekið langan tíma í nágrannalöndunum, svo sem Noregi og Færeyjum. „Vöxturinn hjá Norðmönnum hefur að jafnaði verið um tíu prósent á ári og tvöfaldast framleiðslan þannig á rúmlega sjö ára fresti. Færeyjar hafa upplifað mikinn vöxt í fiskeldi og þar hefur meðaltalsvöxturinn verið um 6,5 prósent á ári. Framleiðslan tvöfaldast þannig á ellefu ára fresti.“ Hann telur óvarlegt að leggja til grundvallar að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig hér á landi en í Noregi, enda séu aðstæður í löndunum að mörgu leyti frábrugðnar. Hafa verði í huga að uppbyggingin taki tíma. Til samanburðar má benda á að um fimmtán þúsund tonnum af eldisfiski var slátrað hér á landi í fyrra sem er aukning um áttatíu prósent frá fyrra ári. Gert er ráð fyrir miklum vexti á næstu árum og er talið að framleitt magn verði komið í um fjörutíu þúsund tonn árið 2020.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Erlent Fullir í flugi Innlent „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Innlent Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Innlent Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni Innlent Fleiri fréttir Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Telja enn að um stakt brot starfsmanns Múlaborgar sé að ræða Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Sjá meira