Fermetraverð hefur hækkað um allt að 58 prósent frá hruni Aðalsteinn Kjartansson skrifar 2. mars 2016 09:15 Meðalverð á fermeter í fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um á bilinu 20 til 50 prósent frá árinu 2009. Vísir/Vilhelm
Frá hruni hefur fasteignaverð hækkað um allt að 58 prósent miðað við nýjustu tölur Þjóðskrár um meðalfermetraverð fjölbýlishúsa. Mesta hækkunin hefur átt sér stað í Garðabæ, miðborg Reykjavík, á Seltjarnarnesi og í Fossvogi. Þar hefur meðalverð á hvern seldan fermetra hækkað á bilinu 50 til 58 prósent.Miðborgin og Vesturbærinn dýrustu staðirnir Dýrasti fermetrinn í fjölbýli er samkvæmt gögnunum í miðborginni, á svæði sem er innan Hringbrautar og Snorrabrautar í Reykjavík. Þar var meðalverð á fermetra tæpar 427 þúsund krónur árið 2015. Næstdýrasti fermetrinn er í Fossvogi, í Löndunum, þar sem að meðaltali var greitt 384 þúsund fyrir. Fermetraverðið í Vesturbænum var á svipuðum slóðum, 383 þúsund krónur, sem og í Sjálandshverfinu í Garðabæ, 381 þúsund krónur. Á hinum endanum eru Vangar í Hafnarfirði, þar sem fermetrinn kostaði að meðaltali 252 þúsund krónur, í Seljahverfinu í Reykjavík, þar sem verðið var gott sem það sama, og í Álfaskeiði í Hafnarfirði, 266 þúsund. Verð í Álfaskeiði hefur þó sveiflast talsvert á milli ára og þurfa tölur þaðan að skoðast í því ljósi.Umtalsverð hækkun síðustu ár Fasteignaverð hrundi á árunum 2009 og 2010 en samkvæmt gögnunum lækkaði verð á nær öllum svæðum á þeim tíma. Álfaskeið í Hafnarfirði sker sig úr í gögnunum en þar hækkaði fermetraverð um 27 prósent á milli áranna 2008 og 2009. Það er algjört einsdæmi á þessum tíma. Árið eftir lækkaði svo verð þar um 42 prósent á milli ára, sem er mun meira en á öðrum svæðum, þar sem algengt var að meðalverð fermetra lækkaði um 5-10 prósent á milli ára. Frá 2010 eru dæmi um að svæði hafi hækkað um rúmlega 60 prósent miðað við meðalverð fermetra fyrir síðasta ár.
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira