Yfirvöld í Kína fjarlægja tímaritsgrein um málfrelsi Daníel Freyr Birkisson skrifar 8. mars 2016 11:58 Xi Jinping, forseti Kína, krafðist þess að fjölmiðlar sýndu honum og yfirvöldum tryggð. Mynd/GettyImages
Eitt af stærstu tímaritum Kína hefur harðlega gagnrýnt Kommúnistaflokkinn sem fer með völdin þar í landi. Þessi gagnrýni kemur í kjölfar þeirrar ritskoðunar sem forseti landsins og leiðtogi Kommúnistaflokksins, Xi Jinping, stuttu eftir að hann krafðist tryggðar fjölmiðla við sig og flokkinn. Fjölmiðillinn Caixin greindi fyrir stuttu frá því hvernig netyfirvöld í Kína hafi fyrirskipað það að viðtal sem fjallaði um málfrelsi skildi fjarlægt. Í viðtalinu er talað við fræðimanninn og álitsgjafann, Jiang Hong. Þar segir hann að álitsgjafar líkt og hann sjálfur eigi að búa yfir frelsi til þess að gefa Kommúnistaflokknum og stofnunum leiðbeiningar varðandi efnahagsleg-, pólitísk- og samfélagsleg mál. Eftir þessa ritskoðun birti tímaritið mynd af munni sem búið er að líma fyrir til þess að mótmæla ritskoðun ríkisstjórnarinnar og netyfirvalda í Kína. Í viðtali sem tekið var við Jiang Hong eftir ritskoðunina, segir hann gjörðir ríkisstjórnarinnar hreint ótrúlegar. Segist Hong ekki hafa séð neitt ólöglegt við greinina sem birtist upprunalega. Það eina sem hafi verið að sé það að stjórnvöld hafi orðið óstyrk við birtingu greinarinnar.Vegið að starfsstétt blaðamannaDavid Bandurski, sérfræðingur í kínverskri blaðamennsku, segir að blaðamenn þar í landi séu á nálum eftir þessa ritskoðun. Þetta mál hafi átt sér mánaðar aðdraganda, eða allt frá því að forseti landsins, Xi Jinping, sagði blaðamenn þurfa elska Kommúnistaflokkinn og verja. „Þetta er erfitt starfsumhverfi fyrir blaðamenn að vita ekki hvað má skrifa og hvað ekki. Þetta er stórt vandamál fyrir þessa starfsstétt. Hvernig eigum við að sinna hlutverki okkar gagnvart samfélaginu þegar við vitum ekki hvað má skrifa?“ segir Bandurski í lokin.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Sjá meira