Umferðarofsi leiðir til slagsmála á hraðbraut Samúel Karl Ólason skrifar 17. maí 2016 11:55
Til slagsmála kom á fjölfarinni hraðbraut nærri Houston í Bandaríkjunum um helgina. Fjórir einstaklingar úr tveimur bílum fóru að rífast sín á milli eftir að ökumaður pallbíls hleypti öðrum ekki inn á akrein, samkvæmt vitnum. Atvikið náðist á myndband en þegar allt virtist vera að róast var drykk kastað í konu. Maður sem var með henni í pallbíl sparkaði í hinn bílinn eftir það. Þá stukku tveir menn úr honum og réðust á ökumanninn. Eftir slagsmál þeirra á milli, þar sem konan er slegin í andlitið, bakkar ökumaður pallbílsins á hinn bílinn af miklu afli.ABC í Texas ræddi við mann sem varð vitni að slagsmálunum. Hann segist hafa verið kyrr á veginum svo að aðrir vegfarendur myndu ekki keyra á fólkið þar sem það var að slást. Hann sagði dóttur sinni að taka rifrildið og svo slagsmálin upp á myndband. Lögreglan segist ekki hafa fengið tilkynningu um málið og því liggur ekki fyrir hvað gerðist eftir að hvíta bílnum var ekið á eftir pallbílnum.
Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira