Júlíspá Siggu Kling - Ljónið: Þú verður að nenna ástinni Sigga Kling skrifar 24. júní 2016 14:30
Elsku Ljónið mitt. Aldrei hefur nokkurn tíma verið sagt að það sé sérlega auðvelt að vera Ljón, en ég er alveg viss um að þótt þú fengir tilboð um að skipta um merki, þá myndir þú ekki gera það. Þið Ljónin eruð náttúrulega öll konungborin. Þið þurfið jú bara að hrista makkann ykkar aðeins, sperra bringuna aðeins og þenja út brjóstkassann.Ég segi að þetta séu háu ljósin ykkar, og stærðin á háu ljósunum skiptir ekki máli. Þetta snýst bara um hvert ljósin eiga að skína. Þú ert að vinna þig svo sterkt og fallega út úr tilfinningalegu amstri. Þú ert að finna þína sterkustu punkta og lætur veikleikana lönd og leið. Sjálfsöryggi er eitthvað sem kemur miklu sterkar fram hjá þér næstu tvo mánuði í það minnsta. Það gerir að verkum að fólk mun treysta þér fyrir svo miklu. Þú getur sigrast á öllu því sem fyrir þig verður lagt. En til þess að gera það, verðurðu bara að trúa því. Steinhættu að leita eftir einhverri viðurkenningu, sérstaklega frá þeim sem skipta engu máli. Þú getur ekki haldið frið við alla, né látið öllum finnast þú vera flottasta Ljón í heimi. Um leið og þú sérð þetta, þá sérðu líka hvað þú ert ríkt Ljón. Á meðan á þessu tímabili stendur, skiptir sérlega miklu máli að þú hættir alveg að vera þrasgjarnt Ljón. Þrasgirnin er þinn Akkillesarhæll og getur komið þér í mikinn bobba. Það skiptir ekki neinu máli hver hefur í raun og veru rétt fyrir sér, meðan þú veist að þú hefur rétt fyrir þér, þá skaltu láta það duga. Það á eftir að koma þér mjög langt. Ástarorkan er allt í kringum þig. En þú verður að nenna að vinna að ástinni, og láta hana skipta öllu máli, ef það er það sem að þér finnst vanta í líf þitt. Þú ert með svo mikinn yndisþokka, að þú myndir vekja stórkostlega athygli þótt þú værir í Crocs! Þú ert ekkert endilega með hefðbundna fegurð, heldur með þennan X-faktor sem skiptir öllu máli. Fólk á eftir að koma auga á hvað þú ert umhyggjusöm manneskja. Þú átt eftir að finna ótrúlega marga hluti á þér, það er eins og þú sért með spádómsgáfu. Skrifaðu niður í símann þinn þær hugsanir sem þú vaknar með í kollinum, eða þær hugsanir sem þú fékkst á koddanum. Því þegar maður er alveg að sofna, þá fær maður merkilegustu skilaboðin, svona þegar þú ert hvorki vakandi, né alveg sofandi. Dásamlegt tímabil hjá þér, elsku Ljón, næstu þrjá mánuði. Nú er mál að tengja sig náttúrunni. Bara það að leggjast á jörðina mun breyta orku þinni ef þú nennir ekkert að labba neitt. Móðir jörð mun gefa þér frið og jarðtengja þig og það skiptir svo miklu máli. Af hverju heldur þú að hún sé annars kölluð móðir jörð? Að sjálfsögðu er hún móðir okkar allra. Og ekki gleyma að þó að þig hafi langað til að gráta, þá munu tárin hjálpa þér því þau eru sumarregn sálarinnar. Það er ekkert fallegra en tilfinningaríkt og einlægt Ljón. Og þetta sumar sem er í gangi, er sumar tilfinninganna. Lífið er yndislegt. Fræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari Agent Fresco.
Stjörnuspá Siggu Kling Tengdar fréttir Júlíspá Siggu Kling - Steingeit: Þetta reddast Elsku sterka Steingeit. Þú hefur svo mikla skoðun á því að allir eigi að vera jafnir og þú þolir alls ekki óréttlæti. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Hrútur: Þráhyggjan er bara blekking Elsku sterki samúðarfulli Hrúturinn minn. Þú þarft alltaf að vera svo upptekinn og skipuleggja tímann þinn svo vel, til þess að finnast að þú hafir gert eitthvað rétt. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Hamingjan bankar á dyrnar Elsku fallegi seiðandi Fiskurinn minn. Hversu dásamlegt á þetta sumar eftir að verða? Það eina sem getur að einhverju leyti truflað þig eða snúið þig niður er annað fólk sem þú ert að stressa þig á, en hefur enga ástæðu til. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þitt besta sumar í lengri tíma Elsku Tvíburinn minn. Ekki hefur verið lognmollunni fyrir að fara í kringum þig. Fólk reynir hvað það getur að hafa stjórn á þér en þú átt bara ekki að leyfa því það. Það getur enginn breytt líðan þinni nema þú gefir samþykki. Passaðu þig á þessu. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Slúður er rödd andskotans Hjartans Vatnsberi. Þú ert að fara inn í merkilegan tíma. Þú ert að fara inn í tíma heiðarleika. Þú ert að fara inn í tíma þar sem að sannleikurinn skiptir ofsalega miklu máli, þú átt eftir að heyra hver sannleikurinn er í hlutum sem þig óraði ekki fyrir. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Hrósaðu en ekki hrekkja Elsku fallega Meyjan mín. Í sumar er mikilvægt að þú trítir þig eins og þú myndir tríta uppáhaldsmanneskjuna þína í öllum heiminum. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Passaðu þig á hreinskilninni Elsku hjartans Bogmaðurinn minn. Boginn þinn er strekktur til hins ýtrasta og á því augnabliki þarft þú að vera alveg pollrólegur svo að örin hitti það mark sem þú miðar á. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Opnaðu hjartað þitt Elsku hjartans tilfinningaríki Sporðdrekinn minn. Þú býrð yfir meiri styrk og krafti en flest öll hin merkin. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling komin á Vísi! Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils njóta gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir júnímánuð má sjá hér fyrir neðan. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Krabbinn: Greddan ræður ríkjum Elsku Krabbinn minn. Það er svo rosalega mikill Venus í kringum þig í sumar. Þú elskar og verður elskaður. Þú verður svo spenntur fyrir svo dæmalaust mörgu að þú veist varla hvert þú átt að stefna. Það er samt allt í lagi. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Vog: Hættu þessu tuði Elsku hjartans Vogin mín. Ekki hafa samviskubit yfir neinu, ekkert bit er sárara einmitt en það. Þú pælir svo mikið í að þú eigir nú að vera búin með þetta, og þú þurfir að klára hitt og vera til staðar þarna, að þú getir fengið svo mikið samviskubit af þessu. 24. júní 2016 14:30 Júlíspá Siggu Kling - Naut: Vinátta er merkilegri en ást Elsku hjartans Nautið mitt. Mikið afskaplega fara öll leiðindi í taugarnar á þér. Þú þarft sko ekki að hafa skoðun á öllu og það er allt í lagi að draga sig í hlé stöku sinnum. 24. júní 2016 14:30 Mest lesið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Tíska og hönnun Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Sjá meira
Júlíspá Siggu Kling - Steingeit: Þetta reddast Elsku sterka Steingeit. Þú hefur svo mikla skoðun á því að allir eigi að vera jafnir og þú þolir alls ekki óréttlæti. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Hrútur: Þráhyggjan er bara blekking Elsku sterki samúðarfulli Hrúturinn minn. Þú þarft alltaf að vera svo upptekinn og skipuleggja tímann þinn svo vel, til þess að finnast að þú hafir gert eitthvað rétt. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Hamingjan bankar á dyrnar Elsku fallegi seiðandi Fiskurinn minn. Hversu dásamlegt á þetta sumar eftir að verða? Það eina sem getur að einhverju leyti truflað þig eða snúið þig niður er annað fólk sem þú ert að stressa þig á, en hefur enga ástæðu til. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þitt besta sumar í lengri tíma Elsku Tvíburinn minn. Ekki hefur verið lognmollunni fyrir að fara í kringum þig. Fólk reynir hvað það getur að hafa stjórn á þér en þú átt bara ekki að leyfa því það. Það getur enginn breytt líðan þinni nema þú gefir samþykki. Passaðu þig á þessu. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Slúður er rödd andskotans Hjartans Vatnsberi. Þú ert að fara inn í merkilegan tíma. Þú ert að fara inn í tíma heiðarleika. Þú ert að fara inn í tíma þar sem að sannleikurinn skiptir ofsalega miklu máli, þú átt eftir að heyra hver sannleikurinn er í hlutum sem þig óraði ekki fyrir. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Hrósaðu en ekki hrekkja Elsku fallega Meyjan mín. Í sumar er mikilvægt að þú trítir þig eins og þú myndir tríta uppáhaldsmanneskjuna þína í öllum heiminum. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Passaðu þig á hreinskilninni Elsku hjartans Bogmaðurinn minn. Boginn þinn er strekktur til hins ýtrasta og á því augnabliki þarft þú að vera alveg pollrólegur svo að örin hitti það mark sem þú miðar á. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Opnaðu hjartað þitt Elsku hjartans tilfinningaríki Sporðdrekinn minn. Þú býrð yfir meiri styrk og krafti en flest öll hin merkin. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling komin á Vísi! Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils njóta gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir júnímánuð má sjá hér fyrir neðan. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Krabbinn: Greddan ræður ríkjum Elsku Krabbinn minn. Það er svo rosalega mikill Venus í kringum þig í sumar. Þú elskar og verður elskaður. Þú verður svo spenntur fyrir svo dæmalaust mörgu að þú veist varla hvert þú átt að stefna. Það er samt allt í lagi. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Vog: Hættu þessu tuði Elsku hjartans Vogin mín. Ekki hafa samviskubit yfir neinu, ekkert bit er sárara einmitt en það. Þú pælir svo mikið í að þú eigir nú að vera búin með þetta, og þú þurfir að klára hitt og vera til staðar þarna, að þú getir fengið svo mikið samviskubit af þessu. 24. júní 2016 14:30
Júlíspá Siggu Kling - Naut: Vinátta er merkilegri en ást Elsku hjartans Nautið mitt. Mikið afskaplega fara öll leiðindi í taugarnar á þér. Þú þarft sko ekki að hafa skoðun á öllu og það er allt í lagi að draga sig í hlé stöku sinnum. 24. júní 2016 14:30