Mikið um félagsleg vandamál í Breiðholti Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 4. nóvember 2016 08:00 Æsufell í Breiðholti. vísir/auðunn
Svört mynd er dregin upp af Efra-Breiðholti í nýrri skýrslu Rauða krossins um hagi lakast settu íbúa Reykjavíkurborgar. „Það er margt sem við viljum ekki vita um Efra-Breiðholt,“ segir sérfræðingur í heilbrigðiskerfinu sem Rauði krossinn vitnar í. Hverfið er sagt láglaunasvæði með mikla fátækt, mörg þjóðarbrot og mikil félagsleg vandamál. Þá eru margar ómenntaðar, ungar, fátækar mæður sagðar búa í hverfinu en sístur sé hagur erlends fólks í láglaunastörfum. Í skýrslunni er hverfið sagt skera sig úr að mörgu leyti. Fjórðungur íbúa sé af erlendum uppruna, hlutfallslega fleiri íbúar séu fatlaðir eða með geðraskanir, menntunarstig sé lægra og þar fram eftir götunum. Hins vegar segir að það beri að hafa í huga að hópurinn sem eigi í vanda sé mun minni en hinn. Flestir plumi sig vel og geti horft björtum augum til framtíðarinnar. Vandamálin eru hins vegar sögð til staðar. Til að mynda er minnst á hættu á því að innflytjendabörn einangrist félagslega. Hins vegar sé verkefnum á borð við unglingasmiðjur og skólasel ætlað að taka á vandanum. Í sumum tilfellum dugi það hins vegar ekki til. „Þetta er vaxandi hópur og sannleikurinn er sá að við erum ansi máttlaus hvað þennan hóp varðar. Það vantar róttæk úrræði sem við höfum ekki mótað enn þá,“ er haft eftir starfsmanni velferðarsviðs borgarinnar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Sjá meira