ÍE þvær hendur sínar af staðhæfingum þess efnis að einbirni lifi lengur Jakob Bjarnar skrifar 24. maí 2016 16:07 Kára krossbrá þegar hann sá forsíðu Moggans í morgun.
Hjá Íslenskri erfðagreiningu eru menn með böggum hildar vegna forsíðufréttar Morgunblaðsins, sem vakið hefur nokkra athygli, að vonum. Fyrirsögnin er „Einbirni sögð lifa lengur“. Þar er vitnað í Róbert Lynch, doktorsnema við háskólann í Missouri í Columbia, og sagt að rannsókn hans sé unnin upp „uppúr upplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu“. Inntak niðurstaðna rannsókna Lynch er að þeir einstaklingar sem koma úr stórum fjölskyldum eignist færri börn og lifa skemur en þeir sem koma úr litlum fjölskyldum. Ljóst má vera að Kára Stefánssyni og hans fólki hjá ÍE brá nokkuð í brún þegar það leit forsíðu Moggans í dag, ef marka má afdráttarlausa yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi frá sér nú rétt í þessu. Þar er eftirfarandi áréttað: „Robert Lynch vann um nokkurra mánaða skeið að rannsóknum hjá Íslenskri erfðagreiningu í samvinnu við vísindamenn fyrirtækisins. Vísindagreinin sem fréttin byggir á virðist lýsa þeirri vinnu. Það var hins vegar mat vísindamanna ÍE að rannsóknir Roberts væru ekki af miklum gæðum og að uppkast að vísindagrein sem hann deildi með þeim væri ekki birtingarhæft.“ Því þvær ÍE algjörlega hendur sínar af öllum þeim staðhæfingum sem koma fram í fréttinni og vísindagreininni og harmar að nafn fyrirtækisins skuli tengt við þær, segir jafnframt í yfirlýsingunni: „ÍE vill líka árétta að Robert fékk engin gögn með sér í nesti þegar hann yfirgaf ÍE og virðist grein sú sem er vitnað til í fréttinni vera byggð á töflum af vafasömum niðurstöðum sem urðu til meðan hann dvaldi í Vatnsmýrinni.“
Mest lesið Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Innlent Skapari Call of Duty lést í bílslysi Erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ráðist á pilt á heimleið Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld eigi að sjá sóma sinn í að greiða allan kostnað Ráðning ráðgjafafyrirtækja skekki myndina milli stjórnar og stjórnarandstöðu „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Sjá meira