Sundlaug og sjósundsaðstaða í Fossvoginum á meðal tillagna í hugmyndasamkeppni um Kársnes Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. febrúar 2016 13:15 Yfirlitsmyndir af tillögunum fjórum. mynd/kópavogsbær
Sundlaug og sjósundsaðstaða í Fossvoginum miðjum, flotbrú milli sveitarfélaga, söfn, yfirbyggður almenningsgarður og lífleg blöndun byggðar eru meðal þess sem lagt er til í tillögum í alþjóðlegri hugmyndasamkeppni um Kársnes, „Kársnes – sjálfbær líftaug.“ Í tilkynningu frá Kópavogsbæ vegna hugmyndasamkeppninnar kemur fram að bærinn hafi verið valinn til þátttöku í keppninni Nordic Built Cities Challenge á síðasta ári. Keppninni var svo hleypt af stokkunum síðastliðið haust og hafa fjórar tillögur nú verið valdar til áframhaldandi þátttöku. Tillögurnar fjórar heita Sólborg, Spot on, Evolve Kársnes og Harbouring life. Í tilkynningunni segir að tillögurnar eigi það sammerkt að vilja efla samfélagið á Kársnesi, nýta einstaka staðsetningu þess og mögulegar tengingar við Vatnsmýrina í Reykjavík, styrkja útivistarsvæði og koma með umhverfisvænar lausnir í mannvistar- og samgöngumálum. Auk Kársness voru Sege Park í Malmö, Tryggve Lies Plass í Osló, Hans Tavsens Park og Korsgade í Kaupmannahöfn, Runavík í Færeyjum og Kera iðnaðarhverfið í Espoo í Finnlandi valin til þátttöku í Nordic Built Cities Challenge. Skipuð var dómnefnd á hverjum stað. Íslensku dómnefndina skipa Guðný Björk Eydal, Hrafnkell Proppé, Karl Benediktsson, Þór Sigfússon og Þóra Kjarval. Alls bárust 19 tillögur í samkeppnina um Kársnes. Tillögurnar eru undir nafnleynd sem ekki verður aflétt fyrr en að lokinni keppni síðar á þessu ári. Kópavogsbær sér um framkvæmd fyrri hluta keppninnar og mun hin íslenska dómnefnd velja eina tillögu sem send verður í lokahluta keppninnar. Í honum etja kappi sigurtillögur frá hverju hinna Norðurlandanna. Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Fleiri fréttir Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum Vill ekki að eftirlitið kæfi hlaðvörpin Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Sjá meira